Lögð er fram tillaga að uppbyggingu ferðaþjónustu á Þórdísarstöðum.Skipulags- og umhverfisnefnd - 175 Skipulags- og umhverfisnefnd fagnar framkomnu erindi um uppbyggingu ferðaþjónustu á Þórdísarstöðum. Nefndin bendir á að framkvæmdaraðili láti vinna deiliskipulag af svæðinu og samhliða verði unnar nauðsynlegar breytingar á aðalskipulagi
Byggingafulltrúa er falið að tilkynna til Landbúnarráðuneytisins breytta landnotkun Þórdisarstaða.
Nefndin bendir Dísarbyggð ehf á að samkvæmt aðalskipulagi Grundarfjarðar er heimilt að byggja allt að 5 hús á hverri jörð án deiliskipulagsbreytinga. Bókun fundarTil máls tóku EBB og EG.
Bæjarstjórn tekur undir bókun skipulags- og umhverfisnefndar.
.21610008Hraðahindranir og umferðamerkingar
Mál nr. 1610008 Hraðahindranir og umferðamerkingar, málið lagt fram öðru sinni með ósk um að nefndarmenn og byggingarfulltrúi komi með tillögur um úrbætur.Skipulags- og umhverfisnefnd - 175Nefndin ræddi staðsetningu og gerð hraðahindrana. Upphækkaðar hraðahindranir við grunnskóla, Hrannarstígur við Smiðjustíg, Grundargata við Sæból. Þrengingar eða önnur gerð hraðahindranna á Sæbóli, Ölkelduvegur (?) og Borgarbraut við gatnamót Hlíðarvegar(?) Byggingarfulltrúa falið að leggja fram hugmyndir að hraðahindrunum.Bókun fundarBæjarstjórn hvetur skipulags- og umhverfisnefnd til að ljúka tillögum sínum tímanlega fyrir vorið.
.31702012Umsagnir vegna rekstrarleyfa
Umsagnir sem byggingarfulltrúi hefur gefið vegna rekstrarsleyfis frá 1. september 2016. Lagt fyrir fund til upplýsinga fyrir nefndarmenn.Skipulags- og umhverfisnefnd - 175