Málsnúmer 1703027

Vakta málsnúmer

Íþrótta- og tómstundanefnd - 83. fundur - 17.03.2017

Árleg Hreyfivika UMFÍ verður haldin dagana 29. maí til 4. júní. Farið yfir dagskrá síðasta árs í Grundarfirði og uppástungur um dagskrárliði fyrir vorið.

UMFG rætt og hugmyndum velt upp um að fá kynningu á starfi félagsins á fund íþrótta- og æskulýðsnefndar.

Íþrótta- og æskulýðsnefnd hefur áður lagt til að Þríhyrningurinn verði a.m.k. að hluta nokkurs konar hreystigarður. Nefndin ítrekar þær hugmyndir sínar og hvetur til þess að ákvarðanir verði teknar um framtíð Þríhyrningsins sem fyrst.