83. fundur 17. mars 2017 kl. 13:00 - 14:30 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir (RDB) formaður
  • Bjarni Georg Einarsson (BGE)
  • Sigríður Hjálmarsdóttir (SH) embættismaður
  • Dominik Bajda (DB)
Fundargerð ritaði: Sigríður Hjálmarsdóttir menningar- og markaðsfulltrúi
Dagskrá

1.Íþróttamaður ársins

Málsnúmer 1410021Vakta málsnúmer

Íþróttamaður ársins var heiðraður fyrsta sunnudag í aðventu. Kosið var á milli fimm tilnefndra íþróttamanna og fór það svo að knattspyrnumaðurinn Þorsteinn Már Ragnarsson var kjörinn Íþróttamaður Grundarfjarðar 2016.
Samþykkt að gera breytingu á kjörblaði fyrir íþróttamann ársins þannig að skýrara sé eftir hverju er valið. Menningar- og markaðsfulltrúa falið að vinna úr hugmyndum nefndarinnar og kynna á næsta fundi hennar.

2.Vinnuskóli og sumarnámskeið 2016

Málsnúmer 1604009Vakta málsnúmer

Farið yfir skýrslur vinnuskóla og sumarnámskeiðs bæjarins fyrir sumarið 2016. Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir, umsjónarmaður vinnuskóla og sumarnámskeiða kynnti skýrslur sínar fyrir nefndarmönnum.

3.Félagsmiðstöðin Eden

Málsnúmer 1612019Vakta málsnúmer

Skýrsla félagsmiðstöðvarinnar Eden lögð fram, Ragnheiður D. Benidiktsdóttir, forstöðumaður, kynnir skýrsluna fyrir nefndarmönnum. Ragnheiður verður í fæðingarorlofi fram til vors 2018 og verður leyst af á meðan.

Nefndin lýsir ánægju sinni með flott og fjölbreytt starf félagsmiðstöðvarinnar Eden.

4.Önnur mál

Málsnúmer 1703027Vakta málsnúmer

Árleg Hreyfivika UMFÍ verður haldin dagana 29. maí til 4. júní. Farið yfir dagskrá síðasta árs í Grundarfirði og uppástungur um dagskrárliði fyrir vorið.

UMFG rætt og hugmyndum velt upp um að fá kynningu á starfi félagsins á fund íþrótta- og æskulýðsnefndar.

Íþrótta- og æskulýðsnefnd hefur áður lagt til að Þríhyrningurinn verði a.m.k. að hluta nokkurs konar hreystigarður. Nefndin ítrekar þær hugmyndir sínar og hvetur til þess að ákvarðanir verði teknar um framtíð Þríhyrningsins sem fyrst.

Fundi slitið - kl. 14:30.