Formaður bæjarráðs og forseti bæjarstjórnar mættu til skiptis á fyrstu fundi nefnda bæjarins, þar sem bæjarstjórn leggur áherslu á góð tengsl við nefndir og hvetur þær til að sýna frumkvæði.
.11806029Erindisbréf ásamt kosningu formanns, varaformanns og ritara
Tillögur eru eftirfarandi: Formaður Bjarni Einarsson Varaformaður Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir Ritari er starfsmaður nefndarinnar, nú bæjarstjóri. Erindisbréf nefndarinnar lagt fram.
Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 85Samþykkt samhljóða. Farið var yfir erindisbréf nefndarinnar og rætt um hlutverk og verkefni á starfssviði hennar. Rósa hvatti til þess að nefndin sýndi frumkvæði í þeim málum sem undir hana heyra og aðstoði bæjarstjórn við að halda utan um þennan mikilvæga málaflokk. Nefndin mun á næsta fundi sínum fara yfir þau lög og reglur sem gilda um starfsemi sem undir nefndina heyrir. Sömuleiðis mun nefndin vinna að setningu markmiða fyrir málefni nefndarinnar, í samræmi við ákvæði í erindisbréfi.
Bæjarstjóri sagði frá skipun ungmennaráðs og að ætlunin væri að bjóða ungmennaráði að sækja ráðstefnu fyrir ungt folk í Mosfellsbæ í næstu viku.
.21806019Fundartími nefnda
Í erindisbréfi nefndarinnar segir að nefndin fundi að jafnaði annan hvern mánuð. Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 85Samþykkt að fundir séu að jafnaði haldnir annan hvern mánuð. Fundartími verði á þriðjudögum kl. 16.30, en fundardagar verði ákveðnir fram í tímann af nefndinni. Næsti fundur verður haldinn þriðjudaginn 9. október kl. 16.30.
.31406005Stjórnsýslulög
Lagðar fram siðareglur fyrir kjörna fulltrúa hjá Grundarfjarðarbæ frá mars 2014 og hæfisreglur sveitarstjórnarlaga.
Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 85Farið yfir siðareglur fyrir kjörna fulltrúa frá mars 2014. Öllum kjörnum fulltrúum í bæjarstjórn, nefndum og ráðum sem sveitarstjórn skipar ber að haga störfum sínum í samræmi við siðareglurnar. Einnig farið yfir hæfisreglur sveitarstjórnarlaga sem gilda fyrir starf í nefndinni. Rætt um verklag nefndarinnar og væntingar nefndarfólks til starfs í nefndinni.
Á fundi sínum þann 16. ágúst sl. samþykkti bæjarstjórn að hefja endurskoðun fjölskyldustefnu Grundfirðinga frá 2006. Bæjarráði var falið að móta frekar umfang og aðferðir við endurskoðunina. Óskað var eftir að nefndir bæjarins færu yfir stefnuna og skiluðu bæjarráði ábendingum sínum um efni hennar og óskum um atriði sem taka þyrfti á í nýrri fjölskyldustefnu. Samráð verði ennfremur haft við helstu stofnanir og hagsmunaaðila við endurskoðunina.Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 85Farið var yfir fjölskyldustefnuna. Rætt var hvað þurfi að hafa í huga við endurskoðun hennar og rætt um aðkomu nefndarinnar. Nefndin mun taka fjölskyldustefnuna til skoðunar og umræðu á næsta fundi sínum.
.51809023Aðalskipulagstillaga - til skoðunar hjá nefndum
Óskað er eftir umfjöllun nefndarinnar um tillögu á vinnslustigi um endurskoðað aðalskipulag, sem samþykkt var af skipulagsnefnd og bæjarstjórn í maí sl.Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 85Farið var yfir helstu þætti sem fram koma í vinnslutillögu að aðalskipulagi og liggja á málefnasviði nefndarinnar. Rætt um opnu svæði bæjarins; Torfabót, Paimpolgarð og Þríhyrning. Farið yfir gamlar teikningar af Þríhyrningi. Varðandi aðalskipulag og framfylgd þess, þá leggur nefndin áherslu á að mikilvægt er að skapa aðstæður fyrir hreyfingu; að gönguleiðir séu greiðar og öruggar og tengi vel saman mikilvægar stofnanir, eins og skóla. Mikilvægt er einnig að hlutverk opinna svæða verði skilgreint og að skipulega sé unnið að uppbyggingu hvers svæðis. Varðandi opin svæði, þá telur nefndin heppilegt að uppbygging/umhverfisbætur í Þríhyrningi séu í forgangi, út frá aðstæðum á svæðinu og sögulegu samhengi.
.61808040Íþrótta-og Ólympíusamband Ísl - Göngum í skólann
Átakið gengur út á að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Átakið hófst 5. september og Göngum í skólann dagurinn er miðvikudaginn 10. október.Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 85Rætt um mikilvægi hvatningar til barna og fullorðinna í þessa veru. Formaður og varaformaður munu fara og hitta skólastjóra grunnskóla og ræða við hann um möguleika til að ýta undir virkan ferðamáta.
.71808003Íþrótta-og Ólympíusamband Íslands. Íþróttavika Evrópu 23.-30. september 2018
Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) verður haldin 23. - 30. september nk. í yfir 30 Evrópulöndum. ÍSÍ kallar eftir verkefnum hjá sambandsaðilum víða um land.Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 85Tengist málinu sem rætt var í næsta lið á undan og verður einnig rætt við skólastjóra. Formaður og varaformaður munu sömuleiðis ræða við UMFG um möguleika til að taka þátt í íþróttavikunni, með viðburði eða öðru.
.81809027Tilmæli Persónuverndar til skóla o.fl. um notkun samfélagsmiðla
Persónuvernd hefur sent frá sér tilmæli til skóla, íþróttafélaga og fleiri um notkun viðkvæmra persónuupplýsinga. Birting mynda af börnum á Facebook-síðum skóla, íþróttafélaga o.fl. getur falið í sér ólöglega birtingu viðkvæmra persónuupplýsinga. Birting tilkynninga um viðburði er hins vegar í lagi. Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 85Lagt fram og rætt.
Formaður bæjarráðs og forseti bæjarstjórnar mættu til skiptis á fyrstu fundi nefnda bæjarins, þar sem bæjarstjórn leggur áherslu á góð tengsl við nefndir og hvetur þær til að sýna frumkvæði.