Málsnúmer 1809008F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 221. fundur - 18.10.2018

  • .1 1809048 Lausafjárstaða
    Bæjarráð - 519 Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.
  • Bæjarráð - 519 Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-ágúst 2018. Skv. yfirlitinu hafa útsvarstekjur hækkað um 13,1% milli ára, miðað við sömu mánuði fyrra árs.
  • Bæjarráð - 519 Lagt fram rekstraryfirlit fyrir janúar-ágúst 2018.
  • Bæjarráð - 519 Lagður fram og kynntur viðauki við fjárhagsáætlun 2018. Breytingar eru vegna aukins framlags til Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga, breytinga á starfsmannahaldi, aukningar lífeyrisskuldbindingar, kaups og sölu eigna, og aukinnar lántöku, m.a. vegna lífeyrisskuldbindinga.

    Viðauki við fjárhagsáætlun 2018 samþykktur samhljóða og vísað til bæjarstjórnar.
  • Bæjarráð - 519 Farið yfir fyrirkomulag vinnu við fjárhagsáætlun 2019 og sett niður áætlun.
  • Bæjarráð - 519 Lagðar fram forsendur fyrir álagningu fasteignagjalda ársins 2019, sundurliðuð niður á álagningarflokka. Vísað til næsta fundar bæjarráðs.
  • .7 1809051 Gjaldskrár 2019
    Bæjarráð - 519 Farið yfir gjaldskrár og lagðar línur að breytingum á þeim. Vísað til næsta fundar bæjarráðs.

  • Bæjarráð - 519 Lögð fram tillaga að álagningarprósentu útsvars árið 2019.

    Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að álagningarprósenta útsvars verði óbreytt frá fyrra ári eða 14,52%.

    Samþykkt samhljóða.
  • Bæjarráð - 519 Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri, sat fundinn undir þessum lið.

    Bæjarráð tekur undir bókun hafnarstjórnar frá 24. september sl. sem segir:

    "Hafnarstjórn felur hafnarstjóra að óska eftir fullnaðarhönnun og útboðsgögnum fyrir fyrsta áfanga framkvæmdarinnar, sem er dæling púða og stefnt er að því að geti hafist fyrir lok árs. Í fjárhagsáætlun Grundarfjarðarhafnar 2018 er gert ráð fyrir 15 milljónum í framkvæmdafé."

    Samþykkt samhljóða.
  • Bæjarráð - 519 Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri, sat fundinn undir þessum lið.

    Lagt fram tilboð Símans hf. í fjarskiptaþjónustu.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra og skrifstofustjóra að ganga frá málinu.

    Samþykkt samhljóða.
  • Tillaga um að sækja um þátttöku í tilraunaverkefni Íbúðalánasjóðs í húsnæðismálum, sbr. auglýsingu. Bæjarráð - 519 Lagt fram bréf Íbúðalánasjóðs frá 11. september sl. varðandi þátttöku sveitarfélaga í tilraunaverkefni í húsnæðismálum.

    Lagt til að Grundarfjarðarbær sæki um þátttöku í tilraunaverkefni Íbúðalánasjóðs í húsnæðismálum. Nýttar verði upplýsingar úr húsnæðisumfjöllun í aðalskipulagstillögu og kafla úr skýrsludrögum SSV um tekjur og fjárhag (óbirt) sem grunn að húsnæðisáætlun.

    Bæjarstjóra er falið að koma umsókn á framfæri við ÍLS.

    Samþykkt samhljóða.
  • Umræða um fyrirkomulag við endurskoðun fjölskyldustefnu Bæjarráð - 519 Rætt um fyrirkomulag við endurskoðun á fjölskyldustefnu bæjarins.

    Nefndir bæjarins hafa fengið stefnuna til umfjöllunar.

    Bæjarráð mun skilgreina hagsmunaaðila og verkferli, auk næstu skrefa, að lokinni fjárhagsáætlanagerð.

    Samþykkt samhljóða.
  • .13 1809028 Skólastefna
    Bæjarstjórn vísaði til bæjarráðs umræðu um endurskoðun skólastefnu og fyrirkomulag vinnu við það. Frumumræða. Bæjarráð - 519 Bæjarráð er sammála því að fara þurfi í endurskoðun skólastefnu, en vill forgangsraða verkefnum þannig að endurskoðun fjölskyldustefnu og gerð stefnu um menningarmál hafi forgang. Skólastefna komi þó að einhverju leyti til skoðunar við endurskoðun fjölskyldustefnu.

    Samþykkt samhljóða.

  • Bæjarráð - 519 Lagður fram til kynningar tölvupóstur Fiskistofu dags. 31. ágúst sl., varðandi úthlutun á aflamarki fyrir fiskveiðiárið 2018-2019.
  • Bæjarráð - 519 Lagt fram til kynningar bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 18. september sl. varðandi fjármálaráðstefnu sveitarfélaganna sem haldinn verður 11.-12. október nk.
  • Bæjarráð - 519 Lögð fram til kynningar fundargerð 96. fundar stjórnar FSS sem haldinn var 17. september sl.
  • Bæjarráð - 519 Lagður fram til kynningar tölvupóstur frá SSV dags. 23. september sl. varðandi fund með þingmönnum Norðvesturkjördæmis 1. október nk.