Málsnúmer 1901003F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 225. fundur - 12.02.2019

  • .1 1810008 Markmið íþrótta- og æskulýðsnefndar
    Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 88 Áframhaldandi umræða var um markmið og verkefni nefndarinnar.
    Undir þessum lið var m.a. rætt um forvarnir og var skólastjóri grunnskólans gestur undir þeim lið. Grunnskólinn mun taka undir boð forvarnafulltrúa FSN um að sameinast um að fá fyrirlesara í heimsókn, fyrir nemendur FSN og nemendur á unglingastigi grunnskólans.

    Bókun fundar Til máls tóku JÓK, UÞS og BÁ.
  • .2 1810006 Samskipti og kynning íþróttafélaga hjá íþr. og æskulýðsnefnd
    Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 88 Fyrirhugaður er fundur nefnda bæjarins með félagasamtökum í íþrótta-, félags- og menningarstarfi. Rætt um framkvæmd, en unnið er að undirbúningi.

    Bókun fundar Til máls tóku JÓK, GS og BÁ.

  • .3 1902015 Sumarnámskeið fyrir börn 2019
    Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 88 Rætt um fyrirkomulag á sumarnámskeiðum fyrir börn og nýbreytni í framkvæmd þeirra.
    Nefndin leggur til að í ár verði námskeið í tvær vikur eftir skólalok, þ.e. 3. -14. júní, og tvær vikur í ágúst, þ.e. 6. til 14. ágúst. Æskilegt er að námskeið séu bæði fyrir og eftir hádegi, þ.e. frá 9-12 og 13-16.
    Nefndin leggur til eftirfarandi hugmyndir sem vinna mætti með:
    - Leitast verði við að hafa námskeiðin fjölbreytt og fræðandi
    - Leitað verði eftir samvinnu við félagasamtök um aðkomu og umsjón með ákveðnum þáttum
    - Leitast verði við að finna einstaklinga sem hafa áhuga á að leggja námskeiðunum lið, t.d. með kennslu, fræðslu eða afþreyingu.
    - Ennfremur að leita eftir samstarfi við félag eldri borgara og áhugasama einstaklinga, sbr. umræður fundarins - til nánari útfærslu.

    Bæjarstjóri sjái um að koma undirbúningi af stað.

    Bókun fundar Til máls tóku JÓK, HK og GS.
  • .4 1808016 Endurskoðun fjölskyldustefnu Grundarfjarðarbæjar
    Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 88 Áframhaldandi umræða varð um áherslur og skilaboð nefndarinnar við endurskoðun fjölskyldustefnu. Rætt var um forvarnir í víðu samhengi, um gæði í samfélagi, mikilvægi þess að kynslóðir eigi samskipti og miðli hver til annarrar, um að allir hafi hlutverk í samfélaginu, o.fl. Efnið mun nýtast við undirbúning fundar með félagasamtökum og inní frekari umræðu um fjölskyldustefnu.

    Bókun fundar Til máls tóku JÓK, UÞS og BÁ.
  • .5 1901008 SSV - Velferðarstefna Vesturlands
    Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 88 Drög að velferðarstefnu Vesturlands eru í kynningar- og umsagnarferli hjá sveitarfélögum á Vesturlandi. Bæjarstjórn auglýsti drögin og bauð uppá umsagnir eða ábendingar.
    Nefndin hefur farið yfir stefnudrögin og lýsir ánægju með efni þeirra. Nefndin telur að margt í stefnudrögunum eigi samhljóm með t.d. fjölskyldustefnu Grundarfjarðarbæjar og markmiðum nefndarinnar, t.d. hvað varðar forvarnir. Ýmis markmið og leiðir í stefnunni nýtist því vel í starfi íþrótta- og æskulýðsnefndar. Nefndin mun fylgjast með framhaldinu og nýta sér stefnuna þegar hún verður fullbúin.

  • .6 1902013 ÍSÍ - Viðburðir 2019
    Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 88 Lagt fram til kynningar og rætt yfirlit ÍSÍ og UMFÍ 2019 um viðburði sem ýta undir hreyfingu almennings.

  • .7 1902014 HSH - Verndum þau, námskeið 13. feb. 2019
    Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 88 Lagt fram til kynningar boð um þátttöku á námskeiði fyrir fólk sem vinnur með börnum, þann 13. febrúar nk. í húsnæði FSN.

  • .8 1901018 Ráðstefna um ofbeldi í íþróttum 30. janúar
    Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 88 Lagt fram til kynningar.