Málsnúmer 1902004

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 225. fundur - 12.02.2019



Lagt fram erindi Sýslumannsins á Vesturlandi dags. 18. janúar 2019 þar sem óskað er umsagnar bæjarstjórnar um umsókn Samkomuhúss Grundarfjarðar, Sólvöllum 3, um rekstur veitingastaðar í flokki III. Jafnframt lagt fram starfsleyfi Heilbrigðiseftirlits Vesturlands.

Til máls tóku JÓK og BÁ.

Bæjarstjórn gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi sé veitt, enda liggi fyrir jákvæðar umsagnir annarra umsagnaraðila.

Samþykkt samhljóða.