Málsnúmer 1910003F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 232. fundur - 28.11.2019

  • .1 1901021 Lausafjárstaða
    Bæjarráð - 539 Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.
  • .2 1904023 Greitt útsvar 2019
    Bæjarráð - 539 Lagt fram yfirlit yfir greitt úrsvar janúar-október 2019. Skv. yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 2,9% fyrstu tíu mánuði ársins, miðað við sama tíma í fyrra. Sé litið til mánaðanna júlí-október hefur útsvar lækkað um 0,5% frá sama tímabili í fyrra.

    Bæjarráð lýsir áhyggjum af þróun útsvarstekna, einkum því hversu sveiflukenndar tekjurnar eru milli mánaða og í samanburði við tekjur fyrri ára.

    Bæjarráð telur verulega skorta á upplýsingagjöf og gagnsæi þegar kemur að útsvarstekjum sem innheimtar eru af Ríkisskattstjóra. Útsvarið er stærsti tekjustofn bæjarins. Eðlilegt er að haldgóðar upplýsingar liggi fyrir um þróun þess, enda nauðsynlegar forsendur í rekstri sveitarfélagsins.
  • .3 1910029 Tillaga um afskriftir viðskiptakrafna
    Bæjarráð - 539 Lögð fram tillaga um afskrift viðskiptakrafna Grundarfjarðarbæjar að fjárhæð 33.714 kr.

    Samþykkt samhljóða.
  • .4 1910024 Sýslumaðurinn á Vesturlandi - Afskriftabeiðnir
    Bæjarráð - 539 Lögð fram tillaga Innheimtumanns ríkissjóðs, Sýslumannsins á Vesturlandi, um afskrift útsvarsskulda. Höfuðstóll skuldanna er 6.144.579 kr.

    Samþykkt samhljóða.
  • .5 1902049 Framkvæmdir 2019
    Bæjarráð - 539 Lagt fram yfirlit yfir stöðu eignfærðra framkvæmda 2019.
  • .6 1909035 Gjaldskrár 2020
    Bæjarráð - 539 Endurskoðun á gjaldskrám v/byggingaleyfis- þjónustu- og framkvæmdaleyfisgjalda og vegna geymslusvæðis verður framhaldið og lokið fyrir fund bæjarstjórnar í desember.

    Samþykkt samhljóða.
  • .7 1910008 Styrkumsóknir 2020
    Bæjarráð - 539 Lögð fram erindi vegna styrkbeiðna ásamt yfirliti yfir áætlaða styrki árið 2020.

    Bæjarráð samþykkir drög að yfirliti og vísar því til fyrri umræðu í bæjarstjórn.

    Samþykkt samhljóða.
  • .8 1909023 Fjárhagsáætlun 2020
    Bæjarráð - 539 Lögð fram launaáætlun ársins 2020 auk samanburðar við áætlun þessa árs. Jafnframt lagður fram útreikningur á kostnaðarhlutfalli foreldra v/leikskóla og tónlistarskóla.

    Lögð fram drög að fjárhagsáætlun 2020 og 3ja ára áætlun áranna 2021-2023. Farið yfir breytingar sem gerðar verða á fyrirliggjandi drögum.

    Bæjarráð samþykkir samhljóða drög að fjárhagsáætlun 2020-2023 og vísar þeim til fyrri umræðu í bæjarstjórn.
  • .9 1910014 Hesteigendafélag Grundarfjarðar - Nýr samningur og skilmálar hesthúsahverfis
    Bæjarráð - 539 Lagt fram erindi Hesteigendafélagsins um að gerður verði nýr samningur um beitarland. Einnig um umgengni í hesthúsahverfi. Til stendur að bæjarstjóri hitti fulltrúa félagsins.

    Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla gagna um efnið og að gera drög að samningi sem lagður verði fyrir bæjarráð.

    Samþykkt samhljóða.
  • .10 1710009 Skotfélagið, erindi 21/9 2017
    Bæjarráð - 539 Lögð fram drög að samningi um æfingaaðstöðu Skotfélagsins Skotgrundar í Samkomuhúsi Grundarfjarðar, sbr. erindi frá 2017.

    Bæjarráð samþykkir samninginn að því gefnu að Skotfélagið uppfylli lög og reglugerðir varðandi skotæfingar innanhúss. Með vísan til 2. gr. samningsdraganna óskar bæjarráð eftir að fara yfir stöðuna í mars nk. m.t.t. reynslunnar sem þá hefur fengist.

    Leigugjald fer skv. gjaldskrá bæjarins v/æfingatíma og ræstingargjalds, en bæjarráð samþykkir að veita 25% afslátt.

    Samþykkt samhljóða.
  • .11 1911011 Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - viðbótarframlag 2019
    Bæjarráð - 539 Lagt fram bréf Heilbrigðiseftirlits Vesturlands dags. 30. október sl. þar sem fram kemur ósk um viðbótarframlag eigenda til eftirlitsins vegna fyrirsjáanlegs halla á yfirstandandi rekstrarári.

    Bæjarráð hefði kosið að fá vitneskju um núverandi stöðu fyrr á árinu v/áætlanagerðar. Bæjarráð samþykkir ósk um viðbótarframlag til heilbrigðiseftirlitsins.

    Samþykkt samhljóða.
  • .12 1911012 Eldstoðir ehf. - nýr samningur
    Bæjarráð - 539 Lögð fram drög að samningi við Eldstoðir ehf. um eldvarnareftirlit. Lagt til að endurnýjaður verði samningur við Eldstoðir ehf.

    Samþykkt samhljóða.
  • .13 1910023 Byggðakvóti 2019-2020
    Bæjarráð - 539 Lögð fram auglýsing vegna úthlutunar byggðakvóta fiskveiðiársins 2019/2020.

    Bæjarstjóra falið að sækja um byggðakvóta.

    Samþykkt samhljóða.
  • .14 1910030 Samstarfsfundir persónuverndarfulltrúa sveitarfélaga - Fundargerð
    Bæjarráð - 539 Lögð fram til kynningar fundargerð samstarfsfundar persónuverndarfulltrúa sveitarfélaga sem haldinn var hjá Sambandi Íslenskra sveitarfélaga 5. september sl.
  • .15 1910034 LS ohf. - Áreiðanleikakönnun viðskiptamanna
    Bæjarráð - 539 Lagt fram til kynningar bréf Lánasjóðs sveitarfélaga vegna áreiðanleikakönnunar viðskiptamanna í tenglsum við aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.
  • .16 1707019 Mennta- og menningarmálaráðuneytið - Grunnskóli Grundarfjarðar v/úttektar.
    Bæjarráð - 539 Lögð fram til kynningar umbótaáætlun Grunnskóla Grundarfjarðar ásamt bréfasamskiptum milli mennta- og menningarmálaráðuneytis og Grundarfjarðarbæjar.
  • .17 1911002 Alþingi - Frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum
    Bæjarráð - 539 Lagður fram tölvupóstur umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis þar sem sent er til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum, nr. 138/2011.
  • .18 1911008 Samband íslenskra sveitafélaga - Jafnréttislög, nýtt námskeið
    Bæjarráð - 539 Lagður fram til kynningar tölvupóstur Sambands íslenskra sveitarfélaga varðandi nýtt námskeið um jafnréttislögin og áhrif þeirra á opinberum og almennum vinnumarkaði.

    Skrifstofustjóra falið að fá upptöku af námskeiðinu.
  • .19 1905001 Umhverfisstofnun - Endurskoðun - lokunarfyrirmæli urðunarstaða
    Bæjarráð - 539 Lagt fram til kynningar bréf Umhverfisstofnunar frá 8. nóvember sl. ásamt skýrslu um lokunareftirlit á aflagðan urðunarstað Grundarfjarðarbæjar.

    Bæjarstjóra falið að vinna áfram að málinu og svara Umhverfisstofnun.
  • .20 1911014 Cognitio ehf.- Framfaravogin 2019
    Bæjarráð - 539 Lagður fram til kynningar tölvupóstur Framfararvogarinnar á fundi sem haldinn verður 18. nóvember nk.
  • .21 1911015 FSN - Skólaakstur, uppgjör vegna haustannar 2018
    Bæjarráð - 539 Lagt fram til kynningar bréf Fjölbrautaskóla Snæfellinga dags. 28. október sl., vegna uppgjörs skólaaksturs á haustönn 2018. Haustönn kom út í halla og er hlutdeild Grundarfjarðarbæjar í þeim kostnaði er 65.658 kr.
  • .22 1911016 FSN - Skólaakstur, uppgjör vegna vorannar 2019
    Bæjarráð - 539 Lagt fram til kynningar bréf Fjölbrautaskóla Snæfellinga dags. 28. okt. sl., vegna uppgjörs skólaaksturs á vorönn 2019. Vorönn kom út í halla og er hlutdeild Grundarfjarðarbæjar í þeim kostnaði er 460.474 kr.