Málsnúmer 1911002F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 232. fundur - 28.11.2019

  • .1 1904011 Breyting á aðalskipulagi vegna hafnarframkvæmda
    Breyting á aðalskipulagi vegna hafnarframkvæmda, þ.e. vegna lengingar Norðurgarðs Grundarfjarðarhafnar og breytinga á námu í Lambakróarholti, var staðfest við birtingu í B-deild Stjórnartíðinda í dag 1. nóvember 2019.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 205 Lagt fram til kynningar.
  • .2 1911021 Lambakróarholt, efnistaka - Umsókn um framkvæmdaleyfi
    Umsókn Grundarfjarðarbæjar um framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku í Lambakróarholti.



    Skipulags- og umhverfisnefnd - 205 Bæjarstjóri Grundarfjarðarbæjar, f.h. bæjarins, leggur fram umsókn um framkvæmdaleyfi, skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna 140.000 m3 efnistöku af tæplega 29.000 m2 svæði, í Lambakróarholti í Grundarfjarðarbæ.
    Ráðgert er til að byrja með að nýta 70.000 m3 af klapparefni úr námunni í brimvörn og fyllingarefni vegna lengingar á Norðurgarði sem hafin er, en efnið verður allt nýtt þar sem þörf er á klapparefni.

    Sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir efnistöku úr Lambakróarholti fyrir 140.000 m3 efnis á grunni staðfestrar breytingar dags. 1.11.2019 á Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2003-2015 vegna lengingar Norðurgarðs og efnistökusvæðis í Lambakróarholti.









    Skipulags- og umhverfisnefnd hefur kynnt sér fylgigögn sem vísað er til í umsókn um framkvæmdaleyfi. Það er mat skipulags- og umhverfisnefndar að framlögð gögn lýsi framkvæmdinni á fullnægjandi hátt, að framkvæmdin sé í samræmi við ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu og gildandi skipulagsáætlun, sbr. 10. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Samræmi er á milli þeirrar framkvæmdar sem lýst er í tilkynningu framkvæmdar til Skipulagsstofnunar og umsóknar um framkvæmdaleyfi, ásamt þeim gögnum sem lögð eru fram með henni.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framkvæmdaleyfi vegna efnistöku í námu í Lambakróarholti í samræmi við fyrrnefnda umsókn með tilvísan í 15. gr. skipulagslaga. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • .3 1911020 Lenging Norðurgarðs - framkvæmdaleyfi
    Grundarfjarðarhöfn sækir um framkvæmdaleyfi í samræmi við breytingu á aðalskipulagi vegna hafnarframkvæmda, sem staðfest hefur verið og birt í B-deild Stjórnartíðinda í dag 1. nóvember 2019.


    Skipulags- og umhverfisnefnd - 205 Hafnarstjóri Grundarfjarðarhafnar, f.h. hafnarsjóðs Grundarfjarðarhafnar, leggur fram umsókn um framkvæmdaleyfi skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 fyrir lengingu Norðurgarðs til austurs og gerðar nýs viðlegukants. Sótt er um framkvæmdaleyfi á grunni staðfestrar breytingar á Aðalskipulagi Grundarfjarðarbæjar 2003-2015 vegna lengingar Norðurgarðs og efnistökusvæðis í Lambakróarholti, dags. 1.11.2019.

    Skipulags- og umhverfisnefnd hefur kynnt sér fylgigögn sem vísað er til í umsókn um framkvæmdaleyfi. Það er mat skipulags- og umhverfisnefndar að framlögð gögn lýsi framkvæmdinni á fullnægjandi hátt, hönnunargögn séu fullnægjandi og að framkvæmdin sé í samræmi við gildandi aðalskipulag, sbr. 10. gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir framkvæmdaleyfi vegna lengingar Norðurgarðs með tilvísan í 15. gr. skipulagslaga. Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.