Málsnúmer 2001002

Vakta málsnúmer

Menningarnefnd - 25. fundur - 08.01.2020

Menningarnefnd samþykkir að ljósyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar fari fram á árinu 2020 með svipuðum hætti og verið hefur. Vísað er í reglur um keppnina.
Farið var yfir þemu samkeppninnar allt frá 2011.
Ákveðið var að þema keppninnar 2020 verði "Vetur í Grundarfirði" - en árið 2011 var þemað "Sumar í Grundarfirði".
Myndirnar verða að vera teknar innan sveitarfélagsmarka á tímabilinu 1. desember 2019 til 1. nóvember 2020.
Bæjarstjóra falið að setja auglýsingu í loftið um þetta.

Menningarnefnd - 27. fundur - 16.09.2020

Farið yfir ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar 2020.
Þema keppninnar í ár er "Vetur" og skilafrestur mynda er til 1. nóvember 2020.

Skilafrestur er lengdur til 15. nóvember.