27. fundur 16. september 2020 kl. 15:30 - 17:15 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Eygló Bára Jónsdóttir (EBJ) formaður
  • Sigurrós Sandra Bergvinsdóttir (SSB)
  • Sigurborg Knarran Ólafsdóttir (SKÓ)
  • Ólöf Guðrún Guðmundsdóttir (ÓGG)
  • Þuríður Gía Jóhannesdóttir (ÞGJ)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ)
Fundargerð ritaði: Björg Ágústsdóttir bæjarstjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Sögumiðstöðin

Málsnúmer 1801048Vakta málsnúmer

Sögumiðstöð - Framtíðarhorfur og notkun
Björg Ágústsdóttir, bæjarstjóri og Eygló Bára Jónsdóttir, formaður menningarnefndar sögðu frá fundi sem þær, ásamt bæjarráði, áttu með Inga Hans Jónssyni um uppbyggingu á starfsemi og aðstöðu í Sögumiðstöð og aðkomu hans að verkefninu.

Megináhersla verði lögð á að efla húsið sem menningar- og samfélagsmiðstöð sem aðgengileg yrði öllum íbúum.

Gestir

  • Björg Ágústsdóttir

2.Menningarnefnd - menning á tímum Covid-19

Málsnúmer 2004007Vakta málsnúmer

Umræða - hugarflug:

Farið yfir verkefni sumarsins, hvað var gert, hvað hefði betur mátt fara.

Almenn umræða og hugmyndir.
Farið yfir helstu verkefni bæjarins á tímum covid-19 sem unnið var að:
Málun á veggjum, ljóðalist, Spjallarinn, Hvatning til útiveru, Takk veggurinn, Ratleikjaapp sem unnið er að, Frisbígolf og önnur verkefni.

Menningarnefnd lýsir ánægju sinni með verkefnið Spjallarinn og þakkar þeim sem að því stóðu kærlega fyrir þeirra framtak.

Gestir

  • Björg Ágústsdóttir

3.Ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðar 2020

Málsnúmer 2001002Vakta málsnúmer

Farið yfir ljósmyndasamkeppni Grundarfjarðarbæjar 2020.
Þema keppninnar í ár er "Vetur" og skilafrestur mynda er til 1. nóvember 2020.

Skilafrestur er lengdur til 15. nóvember.

4.Rökkurdagar 2020

Málsnúmer 2009023Vakta málsnúmer

Undirbúningur Rökkurdaga 2020, menningarhátíðar Grundarfjarðarbæjar.
Rökkurdagar verða haldnir 26. október til 1. nóvember 2020 og munu fara fram með breyttu sniði í ár með tillit til sóttvarnarviðmiða.

Menningarnefnd felur Þuríði Gíu að auglýsa eftir viðburðum og útbúa auglýsingu fyrir Rökkurdaga 2020.

5.Jólaundirbúningur menningarnefndar 2020

Málsnúmer 2009024Vakta málsnúmer

Farið yfir undirbúning viðburða menningarnefndar fyrir jólin.
Jóladagatal Grundarfjarðarbæjar verður birt í lok nóvember þar sem dagskrá desembermánaðar verður kynnt.

Menningarnefnd fór yfir hugmyndir af viðburðum sem meðal annars eru; Jólamyndasamkeppni grunnskólabarna, Jólahús Grundarfjarðar 2020, jólaþorp og margt fleira.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 17:15.