Málsnúmer 2201006F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 256. fundur - 10.02.2022

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 103. fundar íþrótta- og æskulýðsnefndar.
  • .1 2201015 Samþykkt um stjórn Grundarfjarðarbæjar og erindisbréf nefnda
    Bæjarstjórn hefur falið fastanefndum að yfirfara og gera tillögur um breytingar á erindisbréfum ef þær sjá þörf á því.

    Nefndir eiga að hafa hliðsjón af breytingum sem orðið hafa á starfsmönnum nefnda og nýjum embættum og taka tillit til nýrra verkefna sem þeim hefur verið falið að annast, nýrra lagaákvæða eftir atvikum o.fl.

    Æskilegt er að nefndir hafi lokið þessari yfirferð um miðjan mars nk.
    Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 103 Tillaga að breytingum á erindisbréfi:
    1. grein og 4. grein: Taka út menningar- og markaðsfulltrúi, en setja inn íþrótta- og tómstundafulltrúi í staðinn.
    3. grein. Bæta við:
    Sumarnámkeið
    Vinnuskóli
    5. grein. Taka út skipulags- og byggingarfulltrúa en setja inn íþrótta- og tómstundafulltrúa í staðinn.

    Íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að koma þessum atriðum á framfæri við skrifstofustjóra.

    Bókun fundar Til máls tóku JÓK, GS, BÁ, UÞS, SÞ og RG.
  • .2 1903009 Heildarstefna fyrir Grundarfjarðarbæ
    Bæjarstjórn óskar eftir yfirferð og umsögn nefnda um atriði í heildarstefnu (drögum), einkum um aðgerðir, sem heyra undir málefnasvið nefndarinnar.
    Einkum er óskað eftir að nefndin setji fram tillögur að aðgerðum.
    Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 103 Farið yfir gögnin og tillögur lagðar fram í Excelskjali og íþrótta- og tómstundafulltrúa falið að koma þeim á framfæri.
  • .3 1908016 Þríhyrningur - hugmyndir, hönnun, endurbætur
    Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 103 Íþrótta- og æslulýðsnefnd hvetur bæjaryfirvöld til að ljúka framkvæmdum við eldstæði í Þríhyrningi þannig að íbúar bæjarins getið notið þess í vor.
    Jafnframt óskar nefndin eftir upplýsingum um stöðu mála er varðar uppsetningu á söguskilti í garðinum.
    Bókun fundar Allir tóku til máls.
  • .4 2002037 Unicef Ísland - Barnvæn sveitarfélög - Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna
    Til kynningar og umsagnar hjá nefndinni, sbr. umræður og bókun á 581. fundi bæjarráðs 12. janúar sl.
    Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 103 Nefndinni líst vel á að Grundarfjarðarbær taki þátt í þessu verkefni og mælir með því.
  • .5 2201005 UMFG - Samtal um stöðu og verkefni
    Vísað er til umræðu bæjarráðs við formann UMFG á 582. fundi ráðsins þann 14. janúar sl. um málefni félagsins.
    Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 103 Íþrótta- og tómstundafulltrúi sagði frá umræðum bæjarráðs við formann UMFG, en íþrótta- og tómstundafulltrúi sat einnig þennan fund bæjarráðs. Á fundinum var viðruð hugmynd um samstarfssamning milli bæjarins og UMFG, þar sem kveðið væri á um skyldur og verkefni samningsaðila. UMFG skoðar það nú nánar.

    Íþrótta- og æskulýðsnefnd telur að slíkur sé mjög jákvæður fyrir báða aðila og styður þessa hugmynd.
  • .6 2201019 Hugmynd að myndbandi á sviði íþrótta- og æskulýðsmála
    Framhald umræðu á 101. fundi nefndarinnar þann 7. júní sl. um leiðir til að kynna betur fjölbreytt íþróttastarf í Grundarfirði.
    Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 103 Íþrótta- og æskulýðsnefnd líst mjög vel á þá hugmynd að gera kynningarmyndband um íþrótta- og tómstundastarf í Grundarfirði. Nefndin felur íþrótta- og tómstundafulltrúa að kanna frekari möguleika á framkvæmd og kostnaði við gerð slíks myndbands.