Málsnúmer 2207021

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 590. fundur - 07.07.2022



Ákvörðun um að taka lán í samræmi við fjárhagsáætlun ársins hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Lánið verði tryggt með veði í tekjum sveitarfélagsins:

Bæjarráð Grundarfjarðarbæjar samþykkir hér með á bæjarráðsfundi, í umboði bæjarstjórnar, að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 160.000.000,- til allt að 13 ára.
Bæjarráð Grundarfjarðarbæjar samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar), standi tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur bæjarins og framlög til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til fjármögnunar á framkvæmdum ársins og endurfjármögnunar á eldri lánum sem tekin voru upphaflega vegna framkvæmda í sveitarfélaginu sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Björgu Ágústsdóttur, bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Grundarfjarðarbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Samþykkt samhljóða.