Málsnúmer 2208003F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 264. fundur - 20.10.2022

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 105. fundar íþrótta- og æskulýðsnefndar.
  • .1 2209002 Erindisbréf ásamt kosningu formanns og varaformanns íþrótta- og tómstundarnefndar 2022-2026
    Erindisbréf íþrótta- og æskulýðsnefndar lagt fram. Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 105 Íþrótta- og æskulýðsnefnd samþykkti að formaður nefndarinnar verði Ólöf Guðrún Guðmundsdóttir og að varaformaður nefndarinnar verði Ragnheiður Dröfn Benidiktsdóttir. Jafnframt var samþykkt að ritari nefndarinnar verði Ólafur, starfsmaður íþrótta- og tómstundanefndar, nema annað verði ákveðið.

    Nýr formaður tók við stjórn fundarins.
  • .2 2207002 Siðareglur kjörinna fulltrúa í Grundarfjarðarbæ
    Lagðar fram til kynningar við upphaf nefndarstarfs; Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa hjá Grundarfjarðarbæ.
    Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 105 Íþrótta-og tómstundafulltrúi fór yfir siðareglur fyrir kjörna fulltrúa. Hann sagði frá því að bæjarstjórn hafi samþykkt að halda sameiginlegan kynningar- og fræðslufund fyrir nefndarfólk og verður hann haldinn fljótlega.
  • .3 2205031 Fundartími nefnda
    Ákvörðun um reglulegan fundartíma eða heppilega fundardaga nefndarinnar. Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 105 Nefndin mun að jafnaði funda á 6-8 vikna fresti. Nefndin telur ekki þörf á að ákveða fastan fundartíma, heldur mun hún koma sér saman um fundartíma hverju sinni.

    Nefndin ákvað að næsti fundur yrði 12. október kl. 16:30.

    Fundir verða að jafnaði haldnir í Ráðhúsi Grundarfjarðar kl. 16:30.
  • .4 2209003 Verkefni íþrótta- og æskulýðsnefndar
    Farið yfir hlutverk og verkefni nefndarinnar Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 105 Hlutverk íþrótta- tómstundarnefndar er tiltekið í erindisbréfi hennar. Rætt var um að nefndarmenn séu virkir í þátttöku og hugmyndavinnu, til þess að viðhalda sem áhrifaríkustu starfi í þágu íþrótta- og tómstundamála í bænum.

    Rætt var um verkefni nefndarinnar á síðasta kjörtímabili. Þar á meðal má nefna hugmyndir, hönnun og framkæmdir á þríhyrningi, kjör á íþróttamanni Grundarfjarðar og frisbígolfvöllurinn.
  • .5 2209004 Íþrótta-og Ólympíusamband Íslands. Íþróttavika Evrópu 23.-30. september 2022
    Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) verður haldin 23. - 30. september nk. í yfir 30 Evrópulöndum. ÍSÍ kallar eftir verkefnum hjá sambandsaðilum víða um land. Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 105 Íþrótta-og tómstundafulltrúi kynnt dagskrá síðasta árs.
  • .6 2201019 Hugmynd að myndbandi á sviði íþrótta- og æskulýðs
    Íþrótta- og æskulýðsnefnd - 105 RDB fór yfir hugmyndina og stöðuna á kynningarmyndbandi fyrir Grundarfjörð. Íþrótta- og tómstundafulltrúa var falið að kanna hvort Tómas Freyr sem er að vinna myndbandið gæti komið inn á næsta fund til að fara yfir stöðuna á verkefninu.