Málsnúmer 2310023

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 613. fundur - 26.10.2023

Lagt fram til kynningar bréf Vegagerðarinnar dags. 5. október sl. með tilkynningu um fyrirhugaða niðurfellingu Vatnabúðavegar (5707-01) af vegaskrá, þar sem ekki eru lengur íbúar með lögheimili eða atvinnurekstur á heimilisfanginu.



Bæjarráð mótmælir fyrirhugaðri niðurfellingu Vatnabúðavegar af vegaskrá, þar sem enn er skráður fyrirtækjarekstur á staðnum. Því er lagt til að fyrirhugaðri ákvörðun verði frestað.

Bæjarstjóra falið að koma mótmælum bæjarráðs á framfæri við Vegagerðina.

Samþykkt samhljóða.