613. fundur 26. október 2023 kl. 08:30 - 10:55 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG) formaður
  • Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Garðar Svansson (GS)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Fasteignagjöld 2024

Málsnúmer 2309032Vakta málsnúmer

Lögð fram lög um tekjustofna sveitarfélaga þar sem er að finna ákvæði um hámark A-, B- og C-flokks fasteignaskatta, sem og álagningarákvæði fasteignaskatta (gjaldskrá) bæjarins fyrir árið 2023.



Einnig lagt fram yfirlit um áætlun fasteignagjalda 2024 og samanburður við önnur sveitarfélög.

Farið yfir forsendur og breytingu milli ára og gengið frá tillögu til bæjarstjórnar um hækkun lóðarleigu íbúðarhúsnæðis úr 1,5% í 2% og hækkun fráveitugjalds vegna íbúðarhúsnæðis úr 0,19% í 0,2%, sem er það álagningarhlutfall sem verið hefur í mörg ár. Á síðasta ári voru þessi hlutföll lækkuð vegna hækkunar á fasteignamati á yfirstandandi ári. Á næsta ári er gert ráð fyrir svipuðu fasteignamati eða lægra, eftir flokkum.

Samþykkt samhljóða.

2.Gjaldskrár 2024

Málsnúmer 2309033Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir mögulega breytingu á þjónustugjaldskrám ásamt samanburði á gjaldskrám annarra sveitarfélaga og yfirliti sem sýnir hversu stóran hlut af heildarrekstrarkostnaði notendur greiða fyrir þjónustu.

Farið yfir þjónustugjaldskrár, samanburð og yfirlit. Þjónustugjaldskrár fyrir árið 2024 samþykktar og tillögum vísað til afgreiðslu í bæjarstjórn. Nokkrar tillögur eru áfram til skoðunar.

Samþykkt samhljóða.

3.Fjárhagsáætlun 2024

Málsnúmer 2309002Vakta málsnúmer

Lögð fram tekjuáætlun ársins 2024 vegna A-hluta.

Farið yfir tekjuáætlun og fleira.

Vísað til næsta fundar bæjarráðs.

4.Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - Fjárhagsáætlun og gjaldskrá

Málsnúmer 2310024Vakta málsnúmer

Lögð fram fjárhagsáætlun Heilbrigðiseftirlits Vesturlands vegna ársins 2024 ásamt gjaldskrá.



Fjárhagsáætlun HeV og gjaldskrá vegna ársins 2024 samþykkt samhljóða.

5.Samband íslenskra sveitarfélaga - Þátttaka og framlög sveitarfélaga til stafræns samstarfs 2024

Málsnúmer 2310026Vakta málsnúmer

Lagt fram bréf Sambands íslenskra sveitarfélaga dags. 19. október sl. um þátttöku og framlög sveitarfélaga til starfræns samstarfs árið 2024. Jafnframt lögð fram kostnaðaráætlun við þátttökuna.

Kostnaðaráætlun Sambandsins vegna stafræns samstarfs sveitarfélaga samþykkt samhljóða.

6.Grunnskóli og íþróttamannvirki - Orkuskipti

Málsnúmer 1910006Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn og tillaga frá Sigurbjarti Loftssyni verkefnisstjóra um breytta staðsetningu nýs spennistöðvarhúss á vegum RARIK.



Einnig lagðar fram teikningar sem sýna legu tímabundinna vatnslagna sem taka eiga við affallsvatni úr álagsdælingu úr holu nr. 7.



Bæjarráð samþykkir breytta legu væntanlegs spennistöðvarhúss, sbr. framlagða teikningu Sigurbjarts Loftssonar.

Samþykkt samhljóða.

7.Gröf 3 - Fráveitutenging 2023

Málsnúmer 2310029Vakta málsnúmer

Lögð fram fyrirspurn eigenda húss og lóðar í Gröf 3 um endurbætur á fráveitumálum vegna hússins.

Bæjarráð leggur til að fráveitumál við fasteign í Gröf 3 verði leyst með rotþró.

Verkstjóra áhaldahúss og bæjarstjóra falið að skoða nánar framkvæmdina í samræmi við umræður fundarins.

Samþykkt samhljóða.

8.Sýslumaðurinn á Vesturlandi - Ums.b. rekstrarleyfi G.II-Hafnaríbúðir, Grundargötu 12-14, Grundarfj.

Málsnúmer 2309005Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi um umsögn við umsókn Hafnaríbúða ehf. um leyfi til reksturs gististaða í flokki II fyrir 3 íbúðir að Grundargötu 12-14, neðri hæð. Um er að ræða húsnæði í íbúðarhverfi, skv. aðalskipulagi og var erindið því grenndarkynnt með fresti til 20. október sl. Tvær umsagnir bárust og fór bæjarráð yfir efni þeirra. Fyrir liggja jákvæðar umsagnir byggingarfulltrúa og slökkviliðsstjóra.



Málið er til afgreiðslu í bæjarráði samkvæmt umboði sem bæjarstjórn veitti bæjarráði á síðasta fundi.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi sé veitt, en setur fyrirvara um breytingar á bílastæðum frá fyrirliggjandi teikningum. Lagt til að bílastæðum verði komið fyrir framan við hverja íbúð.

Samþykkt samhljóða.

9.Heilbrigðiseftirlit Vesturlands - Eftilitsskýrsla leikskóli

Málsnúmer 2310030Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar eftirlitsskýrsla Heilbrigðiseftirlits Vesturlands dags. 18. október 2023 vegna úttektar á Leikskólanum Sólvöllum.



Búið er að bæta úr þeim tveimur frávikum sem gerðar voru athugasemdir við.

10.FSN - Skólaakstur 2023

Málsnúmer 2310001Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Fjölbrautaskóla Snæfellinga með uppgjöri vegna kostnaðar (hallareksturs) á skólaakstri á vorönn 2023.

Kostnaðarhlutur Grundarfjarðarbæjar vegna hallareksturs á skólaakstri nemenda FSN á vorönn 2023 er að fjárhæð 792.263 kr.

11.Vegagerðin - Tilkynning um fyrirhugaða niðurfellingu Vatnabúðavegar

Málsnúmer 2310023Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf Vegagerðarinnar dags. 5. október sl. með tilkynningu um fyrirhugaða niðurfellingu Vatnabúðavegar (5707-01) af vegaskrá, þar sem ekki eru lengur íbúar með lögheimili eða atvinnurekstur á heimilisfanginu.



Bæjarráð mótmælir fyrirhugaðri niðurfellingu Vatnabúðavegar af vegaskrá, þar sem enn er skráður fyrirtækjarekstur á staðnum. Því er lagt til að fyrirhugaðri ákvörðun verði frestað.

Bæjarstjóra falið að koma mótmælum bæjarráðs á framfæri við Vegagerðina.

Samþykkt samhljóða.

12.Handverkshópur eldri borgara - Uppgjör 2022

Málsnúmer 2310020Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar uppgjör handverkshóps eldri borgara vegna ársins 2022.

13.Innviðaráðuneytið - Römpum upp Ísland

Málsnúmer 2310009Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur innviðaráðuneytisins dags. 2. október sl., ásamt bréfi frá Römpum upp Ísland um stöðuna á landsbyggðinni.

14.Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið - Bréf til sveitarfélaga um innviði fyrir orkuskipti

Málsnúmer 2310011Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar bréf umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins dags. 26. september sl. til sveitarfélaga um innviði fyrir orkuskipti.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 10:55.