Lagt er til að starf leikskólastjóra verði auglýst laust til umsóknar.
Bæjarstjórn samþykkir að starf leikskólastjóra verði auglýst laust til umsóknar. Bæjarstjóra og bæjarráði falið umboð til að annast ráðningarferli og bæjarráði að ganga frá ráðningu í starfið.
Bæjarstjóri sagði frá því að starf leikskólastjóra hafi verið auglýst laust til umsóknar, eins og skólanefnd hafði áður verið tilkynnt, en Margrét Sif Sævarsdóttir sagði starfi sínu lausu í sumar.
Starf leikskólastjóra var auglýst 2. september 2024. Ein umsókn barst, sem ekki uppfyllti skilyrði, og var henni hafnað. Í framhaldinu samdi bæjarstjóri við Heiðdísi Lind Kristinsdóttur um að taka að sér starf leikskólastjóra og var gerður tímabundinn samningur til eins árs.
Samkvæmt Starfsreglum bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar við ráðningu starfsmanna, ræður bæjarstjórn í æðstu stöður, þar á meðal leikskólastjóra.
Að ósk bæjarstjóra, leggur bæjarráð til við bæjarstjórn að bæjarstjóra verði veitt heimild til að ganga frá fastráðningarsamningi við Heiðdísi Lind Kristinsdóttur, leikskólastjóra, með vísan til 1. mgr. 6. gr. Starfsreglna bæjarstjórnar Grundarfjarðarbæjar við ráðningu starfsmanna og með vísan til auglýsingar um starfið 2. sept. 2024.
Samþykkt samhljóða.