Greint frá umræðum á fundi bæjarins með sérfræðingi á tæknisviði Vegagerðarinnar 17. apríl sl. vegna endurhönnunar á Grundargötu m.t.t. umferðaröryggis.
Bærinn hefur óskað eftir aðkomu Vegagerðarinnar að því að endurskoða umgjörð og frágang í Grundargötu, sem er þjóðvegur í þéttbýli, til að bæta umferðaröryggi.
Nanna sagði frá fundi sínum og bæjarstjóra með fulltrúa Vegagerðarinnar, þar sem farið var yfir fjölmörg þau atriði sem brennur á bænum að leysa varðandi Grundargötuna og er háð því hvernig Vegagerðin skilgreinir og gengur frá Grundargötunni.