Blakdeild hefur óskað eftir að setja upp grasblakvöll. Upphaflega var samþykkt að setja upp völlinn á borholusvæði. Eftir nánari skoðun er talið að það sé ekki skynsamlegt vegna vatnavaxta sem eru þar á stórum rigningardögum. Verið er að vinna í áætlun til þess að drena svæðið, en það mun ekki takast á þessu ári. Íþrótta- og tómstundarfulltrúi og verkefnastjóri skipulags- og umhverfismála hafa skoðað aðrar staðsetningar og óska hér með eftir leyfi til þess að setja upp þennan blakvöll við Paimpol garð á móts við grunnskóla. Þar er góð mön sem hægt er að nýta sem stúku, bílastæði er við völlinn, gott aðgengi er að honum, svæði er ekki nýtt í neitt nema grasslátt. Samkvæmt aðalskipulagi er svæðið skilgreint sem samfélagsþjónusta S-3. Þar er í gildi deiliskipulag Ölkeldudals. Á umræddu svæði er fyrirhugað að byggja á þessari lóð en þessi lóð er neðarlega í forgangsröðun í lóðaúthlutun á þessu svæði. Hægt er svo að setja upp girðingu eða gróður til þess að koma í veg fyrir að boltar fari út á götu. Blakdeildin er tilbúin með allan búnað til þess að setja upp völlinn, en vantar heimild fyrir staðsetningu vallarins.
Bæjarráð samþykkir að kanna möguleika á að staðsetja völlinn á eða við borholusvæðið, neðan við svæði með ærslabelg.
Nönnu falið að teikna upp svæðið m.t.t. grasblakvallar.
Samþykkt samhljóða.