Til fundarins eru boðaðir fulltrúar íþróttafélaganna allra, sem standa að kjöri íþróttamanns ársins.
Lagðar fram reglur um kjör íþróttamanns Grundarfjarðar.
Gestir
- Jón Pétur Pétursson - mæting: 17:00
- Sveinn Bárðarson - mæting: 17:00
- Ingibjörg Eyrún Bergvinsdóttir - mæting: 17:00
Í samræmi við reglurnar taka fulltrúar íþróttafélaganna, ásamt aðal- og varamönnum í íþrótta- og tómstundanefnd, þátt í að velja íþróttamanninn.
Fram voru lagðar þrjár tilnefningar íþróttamanna vegna ársins 2025.
Farið var yfir tilnefningarnar og reglur sem um kjörið gilda.
Gengið var til kjörs á íþróttamanni ársins í samræmi við reglurnar. Niðurstöðu verður haldið leyndri þar til íþróttafólk ársins verður heiðrað.
Íþrótta- og tómstundafulltrúi mun sjá til þess að farandbikar verði áritaður og að verðlaunaskjöldur verði útbúinn fyrir íþróttamann ársins. Aðrir íþróttamenn fái blómvönd. Öll fái þau áritað skjal.
Fulltrúum íþróttafélaganna var þökkuð koman og viku þau af fundi.