Ágúst jónsson sækir um leyfi fyrir 17m2 sólskála á suðurhlið Ölkelduvegs 37. Megin burðarvirkið verður úr stáli. Með umsókn fylgja aðaluppdrættir frá Hraunsmúla ehf dags. 26.11.2025.Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 11Sólskáli er innan bygginarreits og innan heimilaðs nýtingarhlutfalls. Samkvæmt skilmálum deiliskipulags skal frágangur á lóðamörkum vera í samráði við eiganda aðliggjandi lóðar, eiganda af Ölkelduvegi 35 var kynnt fyrirhuguð leyfisumsókn og staðfesti að hann gerði ekki athugasemdir. Byggingaráform eru samþykkt, umsóknin fellur undir umfangsflokk 1 skv. gr.1.3.2 í byggingarreglugerð. Bygggingarheimild verður gefin út að uppfylltum skilyrðum 2.3.8 í byggingarreglugerð 112/2012 með áorðnum breytingum og að uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.