Eigandi Ægishólma ehf. sækir um stöðuleyfi til eins árs fyrir matarvagn á miðbæjarreit. Umsækjandi er meðvitaður um að lóðin (miðbæjarreitur) sé í útboðs-/úthlutunarferli og tilhögun afhendingar reitsins ekki frágengin. Í vinnslu er ný gjaldskrá og nýjar reglur um stöðuleyfi, sbr. 7. lið.
Skipulagsfulltrúa falið að ræða við umsækjanda og veitt umboð til að gefa út stöðuleyfi þegar bæjarstjórn hefur samþykkt reglur og gjaldskrá stöðuleyfa. Skipulagsfulltrúa ennfremur falið að ræða við aðra stöðuleyfishafa á miðbæjarreit um reitinn og fyrirkomulag þar.