Eigandi Nesvegar 4 hefur lagt fram fyrirspurn um uppskiptingu lóðarinnar. Í deiliskipulagi Framness austan Nesvegar, sem hefur lokið skipulagsmeðferð hjá Grundarfjarðarbæ og er í athugun hjá Skipulagsstofnun, er heimilað að skipta lóðinni upp.
Gestir
- Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri
Hafnarstjóri fór yfir samskipti við fyrri eigendur hússins og aðdraganda þess að heimild var sett í deiliskipulagstillögu um að skipta upp lóðinni.
Skipulagsfulltrúi greindi frá því að hann hafi rætt símleiðis við fyrirspyrjanda og þeir hyggist funda við tækifæri.
Skipulagsfulltrúa falið að ræða við lóðarhafa um efni fyrirspurnar, í samráði við hafnarstjóra og bæjarstjóra.