Málsnúmer 2601008

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 274. fundur - 20.01.2026

Eigandi Borgarbrautar 8 hefur óskað eftir því að fá að stækka hjá sér innkeyrsluna. Nýlega var samþykkt ný merkjalýsing fyrir lóðina, og eftir breytingu er innkeyrsla á hans lóð einungis um tveggja metra breið. Verið er að endurskipuleggja Borgarbraut ofanverða, m.a. utan við lóð umsækjanda, til að auka umferðaröryggi og í tengslum við blágrænar ofanvatnslausnir og vonast til að framkvæmdir hefjist næsta sumar.

Heiðrún Hallgrímsdóttir víkur af fundi undir þessum lið.

Samþykkt að heimila stækkun innkeyrslu um 3 metra þannig að hún verði alls 5 metrar, en það er almennt breidd innkeyrslna í hverfinu. Verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála falið að hafa fyrirhugaða breikkun innkeyrslu til hliðsjónar við hönnun götunnar í samráði við lóðarhafa.

Heiðrún tók aftur sæti sitt á fundinum.