Málsnúmer 2602020

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 277. fundur - 09.03.2026

Lagt fram til kynningar erindi Jóhanns Jóns Ísleifssonar varðandi málsmeðferð tillögu um deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar, sem auglýst var 17. febrúar sl.



Þrátt fyrir að bæjarstjórn hafi tekið tillöguna úr auglýsingu 26. febrúar sl., að tillögu hafnarstjórnar, þótti rétt að svara erindinu þar sem það lýtur að stjórnsýslumeðferð málsins. Með svari skipulagsfulltrúa fylgdi greinargerð lögmanns bæjarins, sem jafnframt fór yfir málsmeðferð að beiðni skipulagsfulltrúa.



Lagt fram til kynningar.