Málsnúmer 2508011Vakta málsnúmer
Tillaga á vinnslustigi vegna rammahluta aðalskipulags, um blágrænt ofanvatnsskipulag, var kynnt í Skipulagsgátt, á vef bæjarins, í héraðsfréttablaðinu Skessuhorni, auk þess sem útprentuð tillaga lá frammi í Ráðhúsi og í Sögumiðstöðinni, á tímabilinu 16. febrúar sl. til 2. mars sl. Haldið var opið hús í Ráðhúsi Grundarfjarðar, vegna tillögunnar, 25. febrúar sl.
Alls bárust 7 umsagnir frá eftirfarandi aðilum:
Minjastofnun Íslands
Slökkviliði Grundarfjarðar
Náttúruverndarstofnun
Veitum
Náttúrufræðistofnun
Hafrannsóknarstofnun
Veðurstofu Íslands
Einnig lögð fram samantekt umsagna og tillaga skipulagsfulltrúa til nefndarinnar að viðbrögðum við umsögnum.
Umsagnirnar má finna inná Skipulagsgátt.
Ennfremur lögð fram tillaga að breytingu á aðalskipulagi vegna rammahluta til auglýsingar skv. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Við gerð tillögunnar hefur verið höfð hliðsjón af þeim ábendingum/umsögnum sem bárust við vinnslutillöguna.
Gestir
- Halldóra Hreggviðsdóttir, ráðgjafi Alta, í fjarfundi
- Dóra Hrólfsdóttir, ráðgjafi Alta, í fjarfundi