Hér þurfti Loftur Árni Björgvinsson að yfirgefa fundinn.
Ein umsókn barst í starf verkefnastjóra tækni- og byggingarmála, sem auglýst var 26. janúar sl., frá Örvari Þór Örlygssyni, vél- og orkutæknifræðingi.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir gögnum og starfsviðtölum við umsækjandann, sem metinn er hæfur til starfsins út frá fyrirliggjandi skilyrðum í auglýsingu.
Bæjarstjórn samþykkir að Örvar Þór Örlygsson verði ráðinn í starfið og felur bæjarstjóra að ganga til samninga við hann.