-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 277
Farið var yfir umsagnir og viðbrögð við þeim, sem nefndin samþykkir fyrir sitt leyti.
Einnig var farið yfir framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi; rammahluta aðalskipulags vegna blágræns ofanvatnsskipulags, og rætt um einstaka þætti.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu og leggur til við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 31. gr. skipulagslaga með hefðbundnum hætti, með þeim minniháttar lagfæringum sem ræddar voru á fundinum.
Nefndin leggur til að haft verði opið hús til kynningar og umfjöllunar um tillöguna eftir að hún hefur verið auglýst.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu og afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna til athugunar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga og auglýsa hana síðan, með minniháttar lagfæringum, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga.
Opið hús verði til kynningar og umfjöllunar um tillöguna eftir að hún hefur verið auglýst.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 277
Farið var yfir umsagnir sem bárust við auglýsta vinnslutillögu og viðbrögð við þeim, sem nefndin samþykkir fyrir sitt leyti.
Einnig var farið yfir framlagða tillögu að breytingu á aðalskipulagi, til auglýsingar skv. 31. gr. skipulagslaga, vegna stækkunar á reit fyrir íbúðarbyggð, Háubakkar, og samhliða minnkun á reit AF-1. Höfð hefur verið hliðsjón af ábendingum í innkomnum umsögnum, við gerð tillögunnar. Rætt um einstaka þætti.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti framlagða tillögu að breytingu aðalskipulags og leggur við bæjarstjórn að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 31. gr. skipulagslaga, með hefðbundnum hætti.
Nefndin leggur til að haft verði opið hús til kynningar og umfjöllunar um tillöguna eftir að hún hefur verið auglýst.
Bókun fundar
Til máls tóku JÓK og BÁ.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu og afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að senda Skipulagsstofnun tillöguna til athugunar í samræmi við 3. mgr. 30. gr. skipulagslaga og auglýsa hana síðan, með minniháttar lagfæringum, í samræmi við 31. gr. skipulagslaga.
Opið hús verði til kynningar og umfjöllunar um tillöguna eftir að hún hefur verið auglýst.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 277
Skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram að gerð deiliskipulagstillögu til framlagningar skv. 41. gr. skipulagslaga, með hliðsjón af umræðum fundarins.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar. Deiliskipulagið er í vinnslu.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 277
Rætt um þá stjórnsýslumeðferð að afturkalla deiliskipulagsbreytingu og að eðlilegt sé að leggja nýja tillögu fram til auglýsingar skv. 31. gr. skipulagslaga, þar sem skipulagslýsing og vinnslutillaga hafa þegar verið auglýst.
Ekki var lögð fram tillaga fyrir fundinn, en skipulagsráðgjafar fóru yfir kynningu, þar sem tíunduð voru atriði sem nefndin þarf að móta nánar skilmála um við gerð uppfærðrar deiliskipulagstillögu.
Horfa þarf til nýrra tækifæra sem tengjast stækkuðu hafnarplani (svæði kringum hafnarhús) nú þegar bærinn hefur eignast Nesveg 4. Lagt er til að bílastæði sem fylgdu þeirri lóð verði færð yfir á hafnarplanið. Með því verði tenging við miðbæinn og höfnina styrkt og miðbæjarstarfsemi í heild, og tækifæri opnast til að koma upp lifandi starfsemi í og við Nesveg 4.
Hafnarstjórn hefur lagt til að nýr þjóðvegur (neðanbyggðarvegur) verði nefndur Íshúsvegur og verður unnið áfram með það heiti.
Rætt var um stærðir lóða, hæð húsa á einstökum lóðum, nýtingarhlutföll og samhengi þess við stærðir húsa, hugmyndir um útfærslu húsa á einstökum lóðum - einkum á svæðinu næst smábátahöfn/Suðurgarði - og þá um hversu nákvæma skilmála ætti að setja til að ná fram ásýnd eða "stemmningu" eins og á því svæði.
Farið var heildstætt yfir skipulagssvæðið að nýju, út frá breyttum forsendum. Sérstaklega farið yfir mikilvægi skilmála. Hægt er að gera þá stífari og nota þá til að beina tiltekinni starfsemi á ákveðin svæði innan skipulags og setja stífari skilmála um form húsa. Tekin dæmi af uppbyggingu á öðrum hafnarsvæðum og sýnd dæmi af húsagerðum. Hægt er að setja skilmála um þakform og liti bæði bygginga og þaka. Séu slíkir skilmálar fyrir hendi er hægt taka mið af því við gerð ásýndarmynda í kynningarefni. Nú þegar eru skilmálar um glýjulaus þök.
Sérstaklega rætt um skilmála um sameiginlegt útlit á syðstu lóðunum, þ.e. við Suðurgarðinn, þar sem aðkoma er að bænum. Rætt um skýra skilmála fyrir það svæði um útlit, klæðningarefni og liti. Fyrsta lóð vestan Gilóss yrði einnig hluti þess reits og með sömu eða svipaða skilmála.
Rætt um hönnun útlits og að það fari ekki að öllu leyti eftir stærð húsa hversu stór þau virðast. Brjóta megi upp útlit þeirra þannig að ásýnd breytist og þetta mætti ef til vill útfæra í skilmálum.
Rætt um "stóru myndina" aftur. Tengingu deiliskipulagssvæðisins við núverandi byggð og hæðarsetningu húsa við Grundargötu. Hvaða þjónustu þarf og hvar hún sé að dreifast um bæinn. Rifjað upp að á hafnarsvæðinu hafa ekki verið lausar neinar atvinnulóðir um árabil. Verið sé að hugsa langt fram í tímann með þessu skipulagi og það sé bæði mikil fyrirhöfn og óhagstætt að vinna skipulag fyrir lítil svæði í einu. Þá glatast líka tækifærið til að ná heildstæðri hugsun í gegnum svæði. Nefnt var, að það sé einstök staða að náðst hafi að vinna upp deiliskipulagsáætlanir fyrir mörg svæði bæjarins á ekki lengri tíma, en staðan var þannig fyrir örfáum árum að afar lítill hluti þéttbýlisins var deiliskipulagður.
Einnig var rætt um meðferð vinnugagna. Skipulagsráðgjafar hafa lagt fram grunn fyrir samtal á vinnufundum til að byggja samtalið við nefndina á, nú í framhaldi þess að nefndin hafi afturkallað fyrri tillögu sem komin var í auglýsingu. Mikilvægt sé að velta við hverjum steini, árétta þörf og draga fram hugmyndir nefndarinnar við mótun þessarar mikilvægu framtíðarsýnar sem birtast munu í uppfærðri deiliskipulagstillögu fyrir hafnarsvæðið.
Ekki er því litið á þessi vinnugögn ráðgjafa sem tillögur, enda hafa ráðgjafar ekki lagt þau fram fyrir fundi og þau hafa ekki verið vistuð sem slík í skjalakerfi, enda endurspegla þau ekki eiginlegar tillögur. Ekki eru gerðar athugasemdir við þetta vinnulag.
Skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram að nýrri deiliskipulagstillögu með hliðsjón af umræðum nefndarinnar.
Bókun fundar
Til máls tóku JÓK og BS.
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 277
Greint frá umræðum fundar bæjarstjóra og skipulagsfulltrúa með stjórn Bjsv. Klakks fyrr um daginn. Núverandi húsnæði Björgunarsveitarinnar að Sólvöllum 17a er víkjandi í aðalskipulagi.
Fulltrúar stjórnar Klakks voru samþykkir því að tekið yrði frá framtíðarbyggingarsvæði á þessum stað, án þess þó að í því felist skuldbinding um að í framtíðinni eigi sveitin sameiginlegt húsnæði með öðrum.
Um er að ræða lóð sem hægt væri að ganga frá með litlum tilkostnaði ef þurfa þykir.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að lóðin sé tekin frá undir björgunarmiðstöð með aðkomuvegi neðan lóðar. Skoða þarf nánar stærðir lóðar og húss, sem og húshæð.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar um að umrædd lóð verði tekin frá fyrir þessi not, þ.e. aðstöðu fyrir slökkvilið, björgunarsveit og mögulega skylda starfsemi (björgunarmiðstöð). Fyrirvari er gerður um stærð lóðar/lóða og húss/húsa.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 277
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir samhljóða breytinguna og felur skipulagsfulltrúa að auglýsa breytinguna í samræmi við 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ennfremur telur nefndin að ekki sé um nein grenndaráhrif að ræða enda ekki um útlitsbreytingu að ræða og hagsmunir nágranna skerðist í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Ekki er því þörf á að grenndarkynning fari fram í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar. Bæjarstjórn felur skipulagsfulltrúa að ganga frá breytingunni í samræmi við ákvæði skipulagslaga.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 277
Farið yfir framlögð drög og þau rædd.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti samþykktina og að hún verði lögð fyrir bæjarstjórn til samþykktar samhliða nýrri gjaldskrá stöðuleyfisgjalda.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar, en málið er jafnframt sérliður á dagskrá bæjarstjórnarfundarins.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 277
Ástæðan fyrir framlagningu á þessu bréfi nú, er að verið er vinna að því að ljúka afgreiðslu málsins, sem er byggingarleyfisumsókn lóðarhafa.
Svarbréf ráðuneytisins var ekki lagt fyrir skipulags- og umhverfisnefnd þegar það barst, en rétt þykir að leggja það fram til kynningar. Málið er að öðru leyti í höndum byggingarfulltrúa.
Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 277
Lagt fram til kynningar.
-
Skipulags- og umhverfisnefnd - 277