Málsnúmer 2603014

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 277. fundur - 09.03.2026

Á 651. fundi bæjarráðs 26. febrúar sl. var rætt um staðsetningu fyrir lóð fyrir slökkvilið (eða um "björgunarmiðstöð"). Bókun bæjarráðs var svohljóðandi:



"Einnig rætt um mögulega björgunarmiðstöð. Bæjarráð leggur til að ónefnd gata nr. 14 í deiliskipulagstillögu Grundarfjarðarhafnar verði tekin frá fyrir slökkvistöð. Mögulega yrðu lóðamörkin færð aðeins til."



Bæjarstjóri og skipulagsfulltrúi hafa einnig fundað með stjórn Björgunarsveitarinnar Klakks, þar sem rætt var um þessa staðsetningu sem hugsanlegan framtíðarstað fyrir húsnæði björgunarsveitar.



Málið lagt fram til að fá afstöðu nefndarinnar til tillögu bæjarráðs.

Greint frá umræðum fundar bæjarstjóra og skipulagsfulltrúa með stjórn Bjsv. Klakks fyrr um daginn. Núverandi húsnæði Björgunarsveitarinnar að Sólvöllum 17a er víkjandi í aðalskipulagi.

Fulltrúar stjórnar Klakks voru samþykkir því að tekið yrði frá framtíðarbyggingarsvæði á þessum stað, án þess þó að í því felist skuldbinding um að í framtíðinni eigi sveitin sameiginlegt húsnæði með öðrum.

Um er að ræða lóð sem hægt væri að ganga frá með litlum tilkostnaði ef þurfa þykir.

Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að lóðin sé tekin frá undir björgunarmiðstöð með aðkomuvegi neðan lóðar. Skoða þarf nánar þarfir fyrir húsnæði á slíkri lóð/lóðum, m.a. lóðarstærð.