Grundarfjarðarbær sótti um styrk í Barnamenningarsjóð sem heyrir undir Rannsóknarmiðstöð Íslands (Rannís). Umsókn lögð fram til kynningar.
Forstöðumaður menningar- og markaðsmála sagði frá styrkumsókn í Barnamenningarsjóð sem hann gekk frá f.h. Grundarfjarðarbæjar, í samráði við þjónustumiðstöð bæjarins og grunnskóla, og snýst um listsköpun barna/ungmenna í almenningsrýmum (opnum svæðum) bæjarins.