Málsnúmer 2510017Vakta málsnúmer
Bæjarstjórn samþykkti samhljóða, í október sl., framlagða tillögu verkefnisstjóra skipulags- og umhverfismála, íþrótta- og tómstundafulltrúa og forstöðumanns menningar- og markaðsmála, um að stofna samráðshóp um skipulag og nýtingu útivistarkragans ofan þéttbýlis (OP-5). Þremenningarnir lögðu til að samráðshópurinn væri skipaður aðilum úr þeim nefndum er málið varðar, þ.e. skipulags- og umhverfisnefnd, íþrótta- og tómstundanefnd og menningarnefnd (aðilar úr öðrum nefndum kallaðir inn eftir þörfum), auk fulltrúa bæjarstjórnar. Hlutverk samráðshópsins verði að fá hagaðila saman að borðinu til þess að mynda sameiginlega sýn um svæðið, forsendur fyrir frekari ákvörðunum og uppbyggingu.
Óskað er eftir að menningarnefnd tilnefni aðila til þess að sitja í þessum samráðshóp.