Málsnúmer 2603026

Vakta málsnúmer

Menningarnefnd - 54. fundur - 24.03.2026

Grundarfjarðarbær sótti um styrk í Bókasafnssjóð sem heyrir undir Rannsóknarmiðstöð Íslands (Rannís). Umsókn lögð fram til kynningar.

Forstöðumaður menningar- og markaðsmála sagði frá styrkumsókn í Bókasafnssjóð Rannsóknarmiðstöðvar Íslands.

Forstöðumaður menningar- og markaðsmála sagði frá styrkumsókn í Bókasafnssjóð sem hann gekk frá f.h. Grundarfjarðarbæjar, í samráði við starfsmann bókasafns, og snýst hún um að hvetja til lesturs og kveikja áhuga barna/ungmenna á raunvísindum, jarðfræði og sögu Grundarfjarðar. Verkefnið verður unnið í samvinnu við Leikskólann Sólvelli, þar sem þemað hverju sinni verður tengt tímalínu sem unnið er með í leikskólanum.