Málsnúmer 2603042

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundir byggingarfulltrúa - 12. fundur - 28.05.2026

Svava Jónsdóttir arkitekt sækir um byggingarleyfi fyrir breyttri notkun á hænsnahúsi og vélageymslu í gistirými í landi Hamra. Umsókninni fylgja aðaluppdrættir frá Svava Jóns Arkitektúr og ráðgjöf.
Fyrirhuguð byggingaráform voru grenndarkynnt í desember 2025 fyrir eigendum lóða í upprunalandi Hamra. Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti á 274. fundi sínum að veita Skipulagsfulltrúa umboð til að samþykkja áformin, og bæjarstjórn staðfesti bókun nefndarinnar á 306. fundi sínum. Skipulagsfulltrúi hefur farið yfir þá uppdrætti sem hafa borist og telur áformin vera í samræmi við grenndarkynningu. Ekki eru gerðar athugasemdir við áformin.
Byggingaráform eru samþykkt. Umsóknin fellur í umfangsflokk 2 skv. grein 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum greinar 2.4.4. í byggingarreglugerð.