12. fundur 28. maí 2026 kl. 11:30 - 11:45 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Fannar Þór Þorfinnsson (FÞÞ) byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Guðmundur Rúnar Svansson (GRS) starfsmaður umhverfis- og skipulagssviðs
Fundargerð ritaði: Fannar Þór Þorfinnsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Hönnuður - umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Hamrar 136613

Málsnúmer 2603042Vakta málsnúmer

Svava Jónsdóttir arkitekt sækir um byggingarleyfi fyrir breyttri notkun á hænsnahúsi og vélageymslu í gistirými í landi Hamra. Umsókninni fylgja aðaluppdrættir frá Svava Jóns Arkitektúr og ráðgjöf.
Fyrirhuguð byggingaráform voru grenndarkynnt í desember 2025 fyrir eigendum lóða í upprunalandi Hamra. Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti á 274. fundi sínum að veita Skipulagsfulltrúa umboð til að samþykkja áformin, og bæjarstjórn staðfesti bókun nefndarinnar á 306. fundi sínum. Skipulagsfulltrúi hefur farið yfir þá uppdrætti sem hafa borist og telur áformin vera í samræmi við grenndarkynningu. Ekki eru gerðar athugasemdir við áformin.
Byggingaráform eru samþykkt. Umsóknin fellur í umfangsflokk 2 skv. grein 1.3.2. í byggingarreglugerð. Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum greinar 2.4.4. í byggingarreglugerð.

Fundi slitið - kl. 11:45.