-
Bæjarráð - 654
-
Bæjarráð - 654
Samkvæmt yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 10,3% miðað við sama tímabil í fyrra.
-
Bæjarráð - 654
-
Bæjarráð - 654
Lögð var fram fjárhagsgreining HLH Ráðgjafar á rekstri, skuldum og sjóðsstreymi Grundarfjarðarbæjar fyrir tímabilið 2002?2029. Farið var yfir greininguna og hún rædd.
Úr texta Arnars:
Niðurstöður sýna jákvæða rekstrarniðurstöðu 2025, veltufé yfir 10% og skuldaviðmið innan lögboðinna marka. Árangur hefur náðst með lækkun skuldahlutfalls A-hluta en mikilvægt að halda þeirri vegferð áfram, A-hlutinn er í dag 120%.
Afkoma sveitarfélagsins er viðkvæm fyrir ytri skilyrðum og ekki er mælt með frekari skuldaaukningu A-hluta ? mælt er með áframhaldandi niðurgreiðslu skulda og að eiginfjárframlag til nýrra stórfjárfestinga verði ekki lægra en 50% á næstu árum.
Arnari var þakkað fyrir komuna og góða yfirferð.
-
Bæjarráð - 654
Bæjarráð leggur til að laun bæjarfulltrúa og nefndarmanna verði óbreytt.
Samþykkt samhljóða.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
-
Bæjarráð - 654
Bæjarráð leggur til að stjórnmálasamtök, þ.e. listar sem eiga fulltrúa í sveitarstjórn hverju sinni, fái gjaldfrjáls afnot af húsnæði bæjarins fyrir almenna, opna fundi um bæjarmálefni (ekki starf kosningamiðstöðvar), tvisvar á ári hverju, en fjórum sinnum á kosningaári. Auk þess verði gjaldfrjáls afnot af húsnæði bæjarins ef þar er haldinn sameiginlegur, opinn framboðsfundur þeirra lista sem bjóða fram.
Jafnframt lagt til að fjárframlag til stjórnmálasamtaka verði 250 þús. kr. á kjörtímabili (greitt á kosningaári), en það hefur verið 150 þús. kr. á hvert framboð í nokkuð langan tíma.
Samþykkt samhljóða.
Bókun fundar
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu bæjarráðs.
-
Bæjarráð - 654
Bæjarráð samþykkir framlögð drög, sem fer til umsagnar í stofnunum bæjarins.
Samþykkt samhljóða.
Bókun fundar
Vísað er til 10. liðar þessa fundar.
-
Bæjarráð - 654
Bæjarráð samþykkir tillögur að breytingum á reglunum. Bæjarstjóri mun kynna breytingarnar fyrir skólanefnd.
Samþykkt samhljóða.
-
Bæjarráð - 654
Bæjarráð samþykkir tillögu að viðbótaropnun sundlaugar á ofangreindu tímabili. Bæjarráð er jákvætt fyrir því að bæta við lengri opnunartíma fleiri föstudaga í maí og ágúst, ef tök eru á.
Samþykkt samhljóða.
-
Bæjarráð - 654
Bæjarstjóri sagði frá vinnu sem er í gangi við að finna annað húsnæði fyrir félagsmiðstöð unglinga og aðstöðu fyrir félagsstarf. Málið er í vinnslu.
-
Bæjarráð - 654
Örvar fór m.a. yfir stöðu framkvæmda í Sögumiðstöð, en þar eru að hefjast endurbætur á innsta rýminu, syðst í húsinu. Lagfæra þarf ástand veggja og ganga frá raflögnum í samræmi við auknar kröfur um frágang og um notkun rýmis.
Hann sagði frá skoðun á þaki grunnskóla. Bæði þurfti að laga í kringum loftnetsmastur sem Míla fékk leyfi til að setja upp á þaki fyrir nokkrum árum og er það gert á kostnað Mílu, en einnig var farið í skoðun á þaki „gamla skóla“ til að meta leka sem orðið hefur vart við í skólanum. Verið er að meta ástand þaks og þörf fyrir viðgerðir.
Hann sagði frá því að leitað hafi verið tilboða í nýja húseiningu (gámaeiningu) fyrir starfsmannaaðstöðu á gámastöðinni við Ártún 6, en gert er ráð fyrir endurnýjun hennar í fjárhagsáætlun 2026.
Hann sagði einnig frá því að verið er að undirbúa utanhússframkvæmdir á samkomuhúsinu. Þar á að endurnýja glugga, mála húsið að utan og bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða.
Hinrik fór yfir ýmis mál tengd íþróttamiðstöð og íþróttavelli. Hann sagði frá því að um miðjan apríl sl. hafi verið auglýst almennt útboð á utanhússviðgerðum á íþróttahúsi. Klæða á allt húsið og austurhlið tengigangs milli íþróttahúss og grunnskóla, skipta á um megnið af gluggum, en búið var þó að skipta um hluta af gluggum í fyrra og hittifyrra. Einnig er þakviðgerð inní verkinu. Tilboðsfrestur er til 6. maí.
Hinrik fór yfir undirbúning að því að koma upp blakvelli utanhúss, á flötinni fyrir neðan hoppubelgssvæðið ? skv. erindi sem bæjarstjórn hafði samþykkt frá Ungmennafélaginu á sl. ári.
Einnig fór hann yfir mönnunarmál í sundlaug/íþróttahúsi.
Nanna sagði frá ársfundi Icewater-verkefnisins, sem haldinn var í Grundarfirði í síðustu viku og heppnaðist mjög vel. Það var fyrsti ársfundur í verkefninu, sem hófst í fyrra og stendur út árið 2030. Hingað mættu yfir 60 manns frá þeim aðilum sem taka þátt í þessu stóra verkefni.
Nanna fór m.a. yfir fyrirhugaðar framkvæmdir á leiksvæðum, en í undirbúningi eru frekari umbætur á skólalóðum grunnskóla og leikskóla. Á grunnskólalóð á að bæta lýsingu, setja upp „boltagildru“ ? þ.e. girðingu neðst í skólalóð, út við göngusvæðið við Borgarbraut og stækka á sandkassa. Á lóð leikskóla á að gera „drullu-eldhús“ og náttúrulegt svæði í hluta lóðar, ofl.
Hún fór yfir og leitaði álits bæjarráðs á forgangsröðun framkvæmda við aðra leikvelli bæjarins, en hún vill leggja áherslu á að bæta leiksvæðið við Sæból (bak við blokk) í sumar.
Nanna sagði frá framkvæmdum við blágrænu regnbeðin. Hún sagði frá vinnu við að efla umferðaröryggi við grunnskóla, en unnið er eftir áætlun um einfaldar aðgerðir þar að lútandi, sem áður höfðu verið samþykktar í skólanefnd, skipulagsnefnd og bæjarráði. Hún ræddi einnig um tillögur til að bæta umhverfið í kringum íþróttahús, með lagningu stíga ? og sagði frá því að smíða ætti færanleg blómaker fyrir sundlaugargarð.
Nanna fór yfir stöðu gatna og gangstétta á Borgarbraut og Hrannarstíg. Tveir verktakar eru með gangstéttaframkvæmdir sem ekki náðist að klára á sl. ári, sem þeir munu klára nú í vor, m.a. á austurhluta Hlíðarvegar, í Sólvöllum o.fl.
Fengist hefur samþykki Vegagerðarinnar til að hækka/bæta hraðahindrunina sem gerð var sl. sumar austast á Grundargötu, en hún er of lág.
Nanna og Björg sögðu frá samskiptum við Vegagerðina, en á síðasta ári óskuðu þær eftir f.h. bæjarins að Vegagerðin myndi „endurhanna“ hraðalækkandi aðgerðir á Grundargötu, breidd og útfærslu götunnar og fleira sem tengist umferðaröryggi. Árið 2005-6 stóð Vegagerðin einmitt fyrir slíkri hönnun og framkvæmdum, sem juku umferðaröryggi Grundargötu, en þörf er á að betrumbæta það núna, 20 árum síðar. Vegagerðin hefur nú samþykkt að fara í þessa vinnu og áttu þær fund með verkfræðingi Vegagerðarinnar fyrir stuttu. Mörg verkefni bæjarins hanga á því að útfærsla Grundargötu verði kláruð að þessu leyti, af hálfu Vegagerðarinnar.
Þær sögðu einnig frá því að í gangi hefði verið vinna við finna heppilegustu legu göngustígs, frá þéttbýli og út að Kirkjufellsfossi, en stígur lægi í gegnum land bæjarins (Hellnafellsland) og land Kirkjufellsjarðarinnar. Landeigendur Kirkjufells þyrftu að samþykkja allar tillögur um slíkan stíg og hvar honum væri best fyrirkomið með tilliti til öryggis, upplifunar og hagsmuna landeigenda, sem og m.t.t. reiðstígs sem liggur um landið.
Björg sagði frá því að sl. vetur hafi verið útbúin hönnunargögn, unnin af EFLU, vegna gatnagerðar í næsta áfanga (Hjallatún og inní Grafartún og hliðruð tenging við þjóðveg) á iðnaðarsvæðinu vestan Kvernár. Reiknað væri með framkvæmdum við það í haust/síðari hluta árs, og að verðkönnun færi fram.
Hún sagði frá því að nýr lóðavefur hafi verið settur í loftið um sl. mánaðamót, þar sem gerð er grein fyrir lausum lóðum í bænum með haldgóðri lýsingu lóðanna og uppbyggingarsvæða (miðbæjarreitur, Nesvegur 4) og Háubakka, þar sem deiliskipulag og aðalskipulagsbreyting eru í auglýsingaferli.
Örvari, Hinrik og Nönnu var þakkað fyrir þeirra innlegg á fundinum.
-
Bæjarráð - 654
Í forsendum sem bæjarstjórn lagði upp, var óskað eftir áætlun um kostnað við að byggja um 1.200 m2 stórt hús, u.þ.b. 30 x 40 metrar, en að einnig yrði gerð grein fyrir hve mikið kostnaður breyttist ef farið væri af stað með 200 m2 stærra eða minna hús. Húsið væri staðsett í námunda við grunnskólann.
Undirstöður og grind hússins væru hannaðar með það fyrir augum að unnt yrði að stækka (lengja) húsið síðar. Í húsinu verði gert ráð fyrir (a) valkosti með gervigras og (b) valkosti með hefðbundnu gólfi.
Heiðrún Ösp og Jóhannes frá Eflu fóru yfir áætlunina og svöruðu spurningum bæjarráðsfulltrúa.
Að lokinni yfirferð var þeim þakkað fyrir komuna og góðar upplýsingar.
Bæjarráð stefnir að því að kynna þessi gögn fyrir stjórn UMFG.
-
Bæjarráð - 654
Hinrik fór yfir samantekt um styrki annarra sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir árlegt viðbótarframlag til UMFG að fjárhæð 2,5 millj. kr., til reksturs, sem yrði verðbætt árlega miðað við vísitölu neysluverðs.
Gerður yrði viðauki við fjárhagsáætlun ársins sem lagður yrði fyrir bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
-
Bæjarráð - 654
Í erindi Skógræktarfélagsins sem fyrir lá, var nefnt að Ríkiseignir væru jákvæðar fyrir verkefninu en vildu fá afstöðu bæjarins og ábúenda. Skipulagsfulltrúi átti samtal við Ríkiseignir (FSRE) og fyrir lágu minnispunktar af því samtali.
Spurt var hvort breyta þyrfti landnotkun í skipulagi og hvort bærinn væri jákvæður gagnvart þessari tillögu.
Afgreiðsla bæjarráðs 18. desember sl. var þannig:
"Í ljósi framangreindra upplýsinga telur bæjarráð ekki tímabært að efna til samningsviðræðna við ríkið um land í þessu skyni."
Afgreiðsla bæjarráðs 18. desember sl. endurspeglar afstöðu bæjarfulltrúa til málsins, og byggir á mati út frá þeim skyldum sem myndu leggjast á sveitarfélagið samhliða slíku verkefni, þ.e. einkum um greiningu og mögulegar skipulagsbreytingar.
Áréttað er að bæjarráð var ekki að taka afstöðu til þess hvort Skógræktarfélaginu væri heimilt að semja við FSRE, en fyrir liggur að til þess þarf ekki samþykki bæjarstjórnar.
Bæjarráð ítrekar fyrri bókun sína, um að það leggi áherslu á gott samstarf við Skógræktarfélagið um uppbyggingu á þeim svæðum sem þegar eru undir í skógrækt á vegum félagsins.
-
Bæjarráð - 654
Hinrik fór yfir verkefnið og kynnti þátttöku Grundarfjarðarbæjar í því. Bæjarráð tekur undir með íþrótta- og tómstundafulltrúa og þakkar Snæfellsbæ fyrir að bjóða nágrönnum sínum þátttöku í verkefninu.
-
Bæjarráð - 654
-
Bæjarráð - 654
-
Bæjarráð - 654