654. fundur 22. apríl 2026 kl. 08:30 - 13:35 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Sigurður Gísli Guðjónsson (SGG) formaður
  • Garðar Svansson (GS)
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
    Aðalmaður: Ágústa Einarsdóttir (ÁE)
Starfsmenn
  • Björg Ágústsdóttir (BÁ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Lausafjárstaða 2026

Málsnúmer 2601006Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

2.Greitt útsvar 2026

Málsnúmer 2602002Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-mars 2026.

Samkvæmt yfirlitinu hefur greitt útsvar hækkað um 10,3% miðað við sama tímabil í fyrra.

4.HLH ehf. - Fjárhagsgreining, staða og horfur hjá Grundarfjarðarbæ_apríl 2026

Málsnúmer 2604018Vakta málsnúmer

Í tengslum við afgreiðslu ársreiknings 2025 hefur HLH ehf. tekið saman gögn og greiningar um fjárhagsstöðu bæjarins. Lagt fram til skoðunar og umræðu.



Arnar Haraldsson hjá HLH ehf. er gestur fundarins undir þessum lið.

Arnar fór yfir framlagða skýrslu.


Gestir

  • Bjarni Sigurbjörnsson, bæjarfulltrúi, í fjarfundi - mæting: 09:30
  • Davíð Magnússon, bæjarfulltrúi í fjarfundi - mæting: 09:40
  • Arnar Haraldsson, ráðgjafi hjá HLH ehf. í fjarfundi - mæting: 09:30

5.Laun bæjarfulltrúa og nefnda Grundarfjarðarbæjar

Málsnúmer 2604014Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit um núverandi laun bæjarfulltrúa og nefndarmanna hjá Grundarfjarðarbæ.
Bæjarráð leggur til að laun bæjarfulltrúa og nefndarmanna verði óbreytt.

Samþykkt samhljóða.

6.Afnot stjórnmálasamtaka af húsnæði bæjarins

Málsnúmer 2604011Vakta málsnúmer

Ákvörðun um gjaldfrjáls afnot stjórnmálasamtaka af húsnæði bæjarins, rætt í framhaldi af umræðu um málið á fundi bæjarstjórnar 9. apríl sl.

Bæjarráð leggur til að stjórnmálasamtök, þ.e. listar sem eiga fulltrúa í sveitarstjórn hverju sinni, fái gjaldfrjáls afnot af húsnæði bæjarins fyrir almenna, opna fundi um bæjarmálefni (ekki starf kosningamiðstöðvar), tvisvar á ári hverju, en fjórum sinnum á kosningaári. Auk þess verði gjaldfrjáls afnot af húsnæði bæjarins ef þar er haldinn sameiginlegur, opinn framboðsfundur þeirra lista sem bjóða fram.

Jafnframt lagt til að fjárframlag til stjórnmálasamtaka verði 250 þús. kr. á kjörtímabili (greitt á kosningaári), en það hefur verið 150 þús. kr. á hvert framboð í nokkuð langan tíma.

Samþykkt samhljóða.

7.Verklagsreglur tilkynninga um slys

Málsnúmer 2604016Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar og afgreiðslu drög að verklagsreglum vegna tilkynninga ef starfsfólk slasast við vinnu sína eða til og frá vinnu.



Unnið skv. fyrirmynd annarra sveitarfélaga.

Bæjarráð samþykkir framlögð drög, sem fer til umsagnar í stofnunum bæjarins.

Samþykkt samhljóða.

8.Leikskólinn Sólvellir - Inntökureglur, endurskoðun apríl 2026

Málsnúmer 2604017Vakta málsnúmer

Lagðar fram inntökureglur Leikskólans Sólvalla frá 2024 ásamt tillögum að breytingum á reglunum. Breytingarnar eru smávægilegar og leiða af þeim breytingum sem eiga sér stað á leikskólastigi.

Bæjarráð samþykkir tillögur að breytingum á reglunum. Bæjarstjóri mun kynna breytingarnar fyrir skólanefnd.

Samþykkt samhljóða.

9.Föstudagskvöldopnun í Sundlaug Grundarfjarðar sumarið 2026

Málsnúmer 2604015Vakta málsnúmer

Lagt fyrir yfirlit yfir kostnað við viðbótaropnun Sundlaugar Grundarfjarðar og tillaga/hugmynd til skoðunar:



Til skoðunar er hvort hafa eigi lengri opnun sundlaugar á föstudagskvöldum í sumar, þ.e. í staðinn fyrir að loka kl. 21, þá verði opið til kl. 23:00.



Tilgangurinn er sá að laða ungt fólk (ungmenni) í sund á föstudagskvöldum - hafa mætti sérstaka stemningu, t.d. tónlist eða annað, a.m.k. stundum.



Einnig gæti þetta verið kjörið tækifæri fyrir gönguhópa og slíka, sem koma seint heim í áningarstað, að skella sér í sund.



Þetta yrði gert í samtals 11 skipti, þ.e. fyrst föstudag 5. júní (sjómannadagshelgi) og síðasti langi opnunardagur 14. ágúst (föstudagur eftir almyrkvann, sem er 12. ágúst).



Launakostnaður vegna þessarar viðbótaropnunar er áætlaður rúmlega 360 þús. kr.

Bæjarráð samþykkir tillögu að viðbótaropnun sundlaugar á ofangreindu tímabili. Bæjarráð er jákvætt fyrir því að bæta við lengri opnunartíma fleiri föstudaga í maí og ágúst, ef tök eru á.

Samþykkt samhljóða.

10.Félagsmiðstöð og aðstaða til félagsstarfs

Málsnúmer 2604019Vakta málsnúmer

Lagð fram erindi menningarnefndar um félagsmiðstöð og aðstöðu fyrir félagsstarf.

Bæjarstjóri sagði frá vinnu sem er í gangi við að finna annað húsnæði fyrir félagsmiðstöð unglinga og aðstöðu fyrir félagsstarf. Málið er í vinnslu.

11.Framkvæmdir 2026

Málsnúmer 2601004Vakta málsnúmer

Yfirferð ýmissa framkvæmdaverkefna og fleiri verkefna.



Nanna, Hinrik og Örvar voru gestir fundarins, hvert í sínu lagi.



Örvar fór m.a. yfir stöðu framkvæmda í Sögumiðstöð, en þar eru að hefjast endurbætur á innsta rýminu, syðst í húsinu. Lagfæra þarf ástand veggja og ganga frá raflögnum í samræmi við auknar kröfur um frágang og um notkun rýmis.

Hann sagði frá skoðun á þaki grunnskóla. Bæði þurfti að laga í kringum loftnetsmastur sem Míla fékk leyfi til að setja upp á þaki fyrir nokkrum árum og er það gert á kostnað Mílu, en einnig var farið í skoðun á þaki „gamla skóla“ til að meta leka sem orðið hefur vart við í skólanum. Verið er að meta ástand þaks og þörf fyrir viðgerðir.

Hann sagði frá því að leitað hafi verið tilboða í nýja húseiningu (gámaeiningu) fyrir starfsmannaaðstöðu á gámastöðinni við Ártún 6, en gert er ráð fyrir endurnýjun hennar í fjárhagsáætlun 2026.
Hann sagði einnig frá því að verið er að undirbúa utanhússframkvæmdir á samkomuhúsinu. Þar á að endurnýja glugga, mála húsið að utan og bæta aðgengi fyrir hreyfihamlaða.

Hinrik fór yfir ýmis mál tengd íþróttamiðstöð og íþróttavelli. Hann sagði frá því að um miðjan apríl sl. hafi verið auglýst almennt útboð á utanhússviðgerðum á íþróttahúsi. Klæða á allt húsið og austurhlið tengigangs milli íþróttahúss og grunnskóla, skipta á um megnið af gluggum, en búið var þó að skipta um hluta af gluggum í fyrra og hittifyrra. Einnig er þakviðgerð inní verkinu. Tilboðsfrestur er til 6. maí.

Hinrik fór yfir undirbúning að því að koma upp blakvelli utanhúss, á flötinni fyrir neðan hoppubelgssvæðið ? skv. erindi sem bæjarstjórn hafði samþykkt frá Ungmennafélaginu á sl. ári.
Einnig fór hann yfir mönnunarmál í sundlaug/íþróttahúsi.

Nanna sagði frá ársfundi Icewater-verkefnisins, sem haldinn var í Grundarfirði í síðustu viku og heppnaðist mjög vel. Það var fyrsti ársfundur í verkefninu, sem hófst í fyrra og stendur út árið 2030. Hingað mættu yfir 60 manns frá þeim aðilum sem taka þátt í þessu stóra verkefni.

Nanna fór m.a. yfir fyrirhugaðar framkvæmdir á leiksvæðum, en í undirbúningi eru frekari umbætur á skólalóðum grunnskóla og leikskóla. Á grunnskólalóð á að bæta lýsingu, setja upp „boltagildru“ ? þ.e. girðingu neðst í skólalóð, út við göngusvæðið við Borgarbraut og stækka á sandkassa. Á lóð leikskóla á að gera „drullu-eldhús“ og náttúrulegt svæði í hluta lóðar, ofl.

Hún fór yfir og leitaði álits bæjarráðs á forgangsröðun framkvæmda við aðra leikvelli bæjarins, en hún vill leggja áherslu á að bæta leiksvæðið við Sæból (bak við blokk) í sumar.

Nanna sagði frá framkvæmdum við blágrænu regnbeðin. Hún sagði frá vinnu við að efla umferðaröryggi við grunnskóla, en unnið er eftir áætlun um einfaldar aðgerðir þar að lútandi, sem áður höfðu verið samþykktar í skólanefnd, skipulagsnefnd og bæjarráði. Hún ræddi einnig um tillögur til að bæta umhverfið í kringum íþróttahús, með lagningu stíga ? og sagði frá því að smíða ætti færanleg blómaker fyrir sundlaugargarð.

Nanna fór yfir stöðu gatna og gangstétta á Borgarbraut og Hrannarstíg. Tveir verktakar eru með gangstéttaframkvæmdir sem ekki náðist að klára á sl. ári, sem þeir munu klára nú í vor, m.a. á austurhluta Hlíðarvegar, í Sólvöllum o.fl.

Fengist hefur samþykki Vegagerðarinnar til að hækka/bæta hraðahindrunina sem gerð var sl. sumar austast á Grundargötu, en hún er of lág.

Nanna og Björg sögðu frá samskiptum við Vegagerðina, en á síðasta ári óskuðu þær eftir f.h. bæjarins að Vegagerðin myndi „endurhanna“ hraðalækkandi aðgerðir á Grundargötu, breidd og útfærslu götunnar og fleira sem tengist umferðaröryggi. Árið 2005-6 stóð Vegagerðin einmitt fyrir slíkri hönnun og framkvæmdum, sem juku umferðaröryggi Grundargötu, en þörf er á að betrumbæta það núna, 20 árum síðar. Vegagerðin hefur nú samþykkt að fara í þessa vinnu og áttu þær fund með verkfræðingi Vegagerðarinnar fyrir stuttu. Mörg verkefni bæjarins hanga á því að útfærsla Grundargötu verði kláruð að þessu leyti, af hálfu Vegagerðarinnar.

Þær sögðu einnig frá því að í gangi hefði verið vinna við finna heppilegustu legu göngustígs, frá þéttbýli og út að Kirkjufellsfossi, en stígur lægi í gegnum land bæjarins (Hellnafellsland) og land Kirkjufellsjarðarinnar. Landeigendur Kirkjufells þyrftu að samþykkja allar tillögur um slíkan stíg og hvar honum væri best fyrirkomið með tilliti til öryggis, upplifunar og hagsmuna landeigenda, sem og m.t.t. reiðstígs sem liggur um landið.

Björg sagði frá því að sl. vetur hafi verið útbúin hönnunargögn, unnin af EFLU, vegna gatnagerðar í næsta áfanga (Hjallatún og inní Grafartún og hliðruð tenging við þjóðveg) á iðnaðarsvæðinu vestan Kvernár. Reiknað væri með framkvæmdum við það í haust/síðari hluta árs, og að verðkönnun færi fram.

Hún sagði frá því að nýr lóðavefur hafi verið settur í loftið um sl. mánaðamót, þar sem gerð er grein fyrir lausum lóðum í bænum með haldgóðri lýsingu lóðanna og uppbyggingarsvæða (miðbæjarreitur, Nesvegur 4) og Háubakka, þar sem deiliskipulag og aðalskipulagsbreyting eru í auglýsingaferli.

Örvari, Hinrik og Nönnu var þakkað fyrir þeirra innlegg á fundinum.

Gestir

  • Örvar Þór Örlygsson, verkefnastjóri tæknimála - mæting: 11:05
  • Nanna Vilborg Harðardóttir, verkefnisstjóri skipulags- og umhverfismála
  • Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 11:05

12.UMFG - samtal um aðstöðumál

Málsnúmer 2412014Vakta málsnúmer

Dagskrárliðurinn var geymdur og tekinn fyrir í lok fundarins.





Lögð fram gróf kostnaðaráætlun unnin af EFLU fyrir Grundarfjarðarbæ um byggingu ákveðinnar tegundar íþróttahúss.



Í forsendum sem bæjarstjórn lagði upp, var óskað eftir áætlun um kostnað við að byggja um 1.200 m2 stórt hús, u.þ.b. 30 x 40 metrar, en að einnig yrði gerð grein fyrir hve mikið kostnaður breyttist ef farið væri af stað með 200 m2 stærra eða minna hús. Húsið væri staðsett í námunda við grunnskólann.
Undirstöður og grind hússins væru hannaðar með það fyrir augum að unnt yrði að stækka (lengja) húsið síðar. Í húsinu verði gert ráð fyrir (a) valkosti með gervigras og (b) valkosti með hefðbundnu gólfi.

Heiðrún Ösp og Jóhannes frá Eflu fóru yfir áætlunina og svöruðu spurningum bæjarráðsfulltrúa.

Að lokinni yfirferð var þeim þakkað fyrir komuna og góðar upplýsingar.

Bæjarráð stefnir að því að kynna þessi gögn fyrir stjórn UMFG.

Gestir

  • Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 12:30
  • Heiðrún Ösp Hauksdóttir, Eflu - mæting: 12:30
  • Jóhannes Benediktsson, Eflu - mæting: 12:30

13.UMFG - Samstarfssamningur - styrkur v. framkvæmdastjóra

Málsnúmer 2201005Vakta málsnúmer

Tillaga er um að Grundarfjarðarbær styrki UMFG um tiltekna fjárhæð til að hægt sé að ráða framkvæmdastjóra félagsins. Um væri að ræða nýjan styrk, til viðbótar áður samþykktum fjárstuðningi og öðrum stuðningi við félagið.



Lögð fram á fundinum samantekt íþrótta- og tómstundafulltrúa um styrki annarra sveitarfélaga, til samanburðar. Einnig lögð fram samantekt UMFG á mögulegum verkefnum sem slíkur framkvæmdastjóri félagsins myndi sinna.



Hinrik fór yfir samantekt um styrki annarra sveitarfélaga.

Bæjarráð samþykkir árlegt viðbótarframlag til UMFG að fjárhæð 2,5 millj. kr., til reksturs, sem yrði verðbætt árlega miðað við vísitölu neysluverðs.

Gerður yrði viðauki við fjárhagsáætlun ársins sem lagður yrði fyrir bæjarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Hinrik Konráðsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi - mæting: 11:50

14.Skógræktarfélag Eyrarsveitar - Fornir birkiskógar Hallbjarnareyri

Málsnúmer 2503011Vakta málsnúmer

Lagður fram tölvupóstur frá ritara Skógræktarfélags Eyrarsveitar, þar sem áréttað er efni erindis sem snýst um að Skógræktarfélagið vill fá afnot af svæði úr landi Hallbjarnareyrar (ríkisjörð) til að rækta birkiskóg. Bréfritari telur að ónóg gögn hafi legið fyrir fundi bæjarráðs 18. desember sl. þegar erindið var tekið fyrir og afgreitt.

15.Beam verkefni

Málsnúmer 2604013Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn frá íþrótta- og tómstundafulltrúa, um Erasmus-verkefni sem ber heitið BEAM: Building Entrepreneurial Attitude and Mindset.



Markmið þess er að þróa hagnýtt og notendavænt stuðningslíkan sem hjálpar til við að efla frumkvöðlahugsun, sköpun, þátttöku og samfélagslega virkni ungs fólks í dreifbýli.



Hverjir henta í verkefnið?

Starfsfólk sem vinnur með ungmennaráðum

Æskulýðsráðgjafar eða leiðbeinendur

Tómstunda- og félagsmálafræðingar

Starfsfólk sem vill efla frumkvöðlafærni og þátttöku ungs fólks



Snæfellsbær sótti um þetta verkefni/styrk, og hefur boðið nágrönnum að vera með, þ.e. Grundarfjarðarbæ og Sveitarfélaginu Stykkishólmi, en einnig eru í verkefninu sveitarfélög í Suður-Eistlandi.

Hinrik fór yfir verkefnið og kynnti þátttöku Grundarfjarðarbæjar í því. Bæjarráð tekur undir með íþrótta- og tómstundafulltrúa og þakkar Snæfellsbæ fyrir að bjóða nágrönnum sínum þátttöku í verkefninu.

16.Hrannarstígur 34 - sala á húsnæði

Málsnúmer 2512011Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar undirritaður kaupsamningur um fasteignina.

17.Listvinafélag Grundarfjarðarkirkju - Ársuppgjör 2025

Málsnúmer 2604008Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar ársuppgjör Listvinafélags Grundarfjarðarkirkju fyrir árið 2025.

18.Cruise Iceland - Fundargerð og fundargögn aðalfundar Cruise Iceland 12. mars 2026

Málsnúmer 2603033Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar fundargerð og fundargögn aðalfundar Cruise Iceland sem haldinn var 12. mars sl. Einnig lagður fram ársreikningur 2025.

Gengið var frá fundargerð í framhaldi af fundi og rafræns samþykkis aflað frá fundarmönnum.

Fundi slitið - kl. 13:35.