Skólanefnd er sammála um að það hafi verið einstaklega gagnlegt að styðjast við mótaða starfsáætlun í starfi nefndarinnar sl. tvö ár, en slík áætlun hefur í grunninn verið útbúin af Ásgarði, skólaráðgjöf, og aðlöguð af skólanefnd að skipulögðum fundum nefndarinnar yfir skólaárið. Í starfsáætluninni er að finna öll þau atriði sem skólanefndum ber skv. lögum að fylgjast með og fylgja eftir, í sínu starfi. Áætlunin eykur ábyrgð og skýrleika í starfi skólanefndar, sem og yfirsýn yfir fjölþætt hlutverk nefndarinnar.
Skólanefnd - 190Skólanefnd mælir með því við nýkjörna bæjarstjórn að ný skólanefnd eigi kost á að styðjast við slíka áætlun í sínu starfi.
Lögð fram tillaga leikskólastjóra um endurbætta skólanámskrá Leikskólans Sólvalla og glæný skýrsla um innra mat leikskólans.
Einnig lagðir fram minnispunktar leikskólastjóra um starfið að undanförnu.
Skólanefnd - 190 Framlögð innra mats skýrsla leikskóla, sem og grunnskóla (dagskrárliður 3), dregur saman niðurstöður gæðaráðs skólanna. Innra mats skýrsla inniheldur umbótaáætlun þar sem gerð er grein fyrir þeim verkefnum sem farið var í og ætlunin er að fara í til að bæta gæði skólastarfsins. Gæðaráð safnar fjölbreyttum gögnum og mátar stöðu skólans við viðmið skólans um árangur.
Leikskólinn Sólvellir byrjaði vorið 2022 að innleiða gæðaviðmið um leikskólastarf. Gæðaviðmið eru eins konar uppskrift af góðu leikskólastarfi sem hver skóli gerir að sínum. Leikskólinn metur sitt eigið starf með enn skýrari hætti, nú á grunni menntastefnu bæjarins frá 2023 og fjölþættum gögnum í öllum flokkum leikskólastarfsins. Við lok skólaársins 2025-2026 var stefnt að því að 90% allra matsþáttanna yrðu “GRÆNIR?, sjá skýrslu. Það markmið náðist 100%, sem þýðir að öll viðmið um gæðastarf eða allir matsþættir séu sterkir.
Skólanefnd lýsir mikilli ánægju með þá vinnu sem birtist í framlögðum gögnum og þakkar leikskólastjóra, gæðaráði og starfsfólki fyrir afar gott starf.
Skólanefnd leggur til við nýja bæjarstjórn að hún samþykki endurbætta skólanámskrá Leikskólans Sólvalla.
Bókun fundarBæjarstjórn samþykkir, að tillögu skólanefndar, endurbætta skólanámskrá Leikskólans Sólvalla.
- Skýrsla innra mats grunnskóla, júní 2026
- Upplýsingar um könnun sem send var til foreldra um notkun á Mentor
- Um tilfærslu nemenda milli leik- og grunnskóla
- Fundargerðir skólaráðs 9. janúar og 12. maí 2026
- Niðurstöður könnunar meðal kennara um nám og kennslu (vor 2026)
- Nemendakönnun hjá 6.-10. bekk á vorönn 2026
- Yfirlit yfir fundi gæðaráðs með skólaráðgjafa, skólaárið 2025-2026
- Minnisblað um farsældarstarf veturinn 2025-2026
- Nemendakönnun Skólapúlsins 2025
Skólanefnd - 190Framlögð innra mats skýrsla dregur saman niðurstöður innra mats gæðaráðs skólans. Innra mats skýrsla inniheldur umbótaáætlun þar sem gerð er grein fyrir þeim verkefnum sem farið var í og ætlunin er að fara í til að bæta gæði skólastarfsins. Gæðaráð safnar fjölbreyttum gögnum og mátar stöðu skólans við viðmið skólans um árangur.
Í heildarniðurstöðu segir:
"Í vetur hefur sérstök áhersla verið á að meta þáttinn Stjórnun og fagleg forysta. Eftir næsta vetur liggja fyrir gögn á bak við öllu mati á gæðum skólans í þeim þremur flokkum sem hafa verið teknir fyrir á fundum gæðaráðsins. Sérstakar áherslur sveitarfélagsins verða einnig teknar fyrir næsta vetur. Allir þættir innra mats eru dökkgrænir og tengdir við gögn skólans. Þeir þættir sem út af standa í Stjórnun og faglegri forystu snúa að vöntun á gögnum og sönnunum sem eru hluti af umbótaáætlun næsta árs. Eftir næsta ár ættu allir eða flestir þættir í þeim flokki að vera dökkgrænir."
Skólanefnd lýsir mikilli ánægju með þá vinnu sem birtist í framlögðum gögnum og þakkar skólastjóra, gæðaráði og starfsfólki fyrir afar gott starf.
Linda María aðstoðarskólastjóri átti ekki kost á að sitja þennan lokafund skólanefndar á kjörtímabilinu, en bæjarstjóri færði fundinum kveðju hennar.
Lagðir fram minnispunktar aðstoðarskólastjóra um verkefni tónlistarskólans í maímánuði ofl.
Skólanefnd - 190Í minnispunktum aðstoðarskólastjóra kemur fram að innritun fyrir næsta skólaár hafi farið fram rafrænt dagana 21. maí - 1. júní sl. Innritun gekk vel. Opnað verður aftur fyrir skráningar í ágústmánuði.
Fram kom hjá leikskólastjóra að tónlistarskólinn og leikskólinn munu á komandi skólaári taka þátt í verkefni á landsvísu sem ber heitið Söngvavor. Kennarar tónlistarskóla leiða starfið, þar sem nemendur tónlistarskólans munu sjá um allan tónlistarflutning og tveir elstu árgangar leikskólans munu sjá um sönginn. Teknir eru fyrir söngvar íslenskra lagahöfunda/tónskálda í lotum. Á liðnu skólaári voru söngvar eftir Dr. Gunna teknir fyrir en ekki liggur fyrir hvaða tónskáld verður tekið fyrir á komandi vetri. Verkefninu lýkur með tónleikum nemenda tónlistarskólans og leikskólans vorið 2027.
Skólanefnd þakkar stjórnendum og starfsfólki tónlistarskólans fyrir afar gott starf.
Lögð fram gögn frá Námsleyfasjóði um úthlutun úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla fyrir 2026.
Skólanefnd - 190Stjórn Námsleyfasjóðs veitir Grunnskóla Grundarfjarðar styrk úr Endurmenntunarsjóði grunnskóla skólaárið 2026-2027 til verkefnis fyrir kennara og stjórnendur grunnskóla um "Jákvæða agastjórnun og uppbyggjandi samskipti í kennslustofu", að fjárhæð 264.000 kr.