Málsnúmer 2604007F

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 311. fundur - 07.05.2026

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða fundargerð 279. fundar skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Í vinnslu er tillaga að breyttu deiliskipulagi Skerðingsstaða, sbr. fyrirspurn sem afgreidd var á 278. fundi nefndarinnar 26. mars sl.


    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Farið yfir stöðu málsins.

    Sótt hefur verið um byggingarleyfi fyrir byggingu fimm frístundahúsa í landi jarðarinnar, í samræmi við gildandi deiliskipulag innan byggingarreits sem ætlaður er fyrir frístundahús. Það sé þó háð samþykki landeiganda.

    Tillaga um breytingu deiliskipulags er í vinnslu, skv. upplýsingum frá fulltrúa umsækjanda.

  • Í kjölfar kaupa Grundarfjarðarhafnar á Nesvegi 4 er óskað eftir breytingu á lóðarmörkum eignarinnar, þannig að hluti lóðar, sem notaður hefur verið undir bílastæði að sunnanverðu, verði hluti af svæði sem í deiliskipulagstillögu er nú nefnt „hafnartorg“. Lóðin minnkar þá skv. framlagðri tillögu. Samhliða verði deiliskipulagsmörkum breytt.

    Tilgangur breytingarinnar er að nýta betur svæðið sem áður var bílastæði við Nesveg 4 og bæta flæði gangandi umferðar til og frá hafnarsvæði að miðbæ og auka umferðaröryggi, með því að tengja það betur við „hafnartorgið“.

    Lóðin að Nesvegi 4 er hluti af Deiliskipulagi Framness austan við Nesveg, en hafnartorgið eða opna svæðið milli hafnarhúss að Nesvegi 2 og hússins að Nesvegi 4 er hluti af Deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar, sem nú er í vinnslu.
    Lagt er til að deiliskipulagsmörkum verði breytt samhliða þessari breytingu á lóðarmörkum Nesvegar 4, þannig að „bílastæðahlutinn“ falli innan marka nýs Deiliskipulags Grundarfjarðarhafnar sem er í vinnslu, en ekki innan deiliskipulags hafnarsvæðisins (Framnes austan við Nesveg). Hafnartorgið verði þannig skýrari heild.

    Skipulagsfulltrúi óskar eftir umboði til að breyta deiliskipulagi í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010, og ennfremur óskar hann eftir afstöðu nefndarinnar til þess hvort grenndarkynning þurfi að fara fram vegna breytingar og hverjir séu þá grenndaraðilar.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að skipulagsfulltrúi fái umboð til að breyta lóðarmörkum Nesvegar 4 skv. framlagðri tillögu og gera nýja merkjalýsingu fyrir Nesveg 4. Einnig samþykkir nefndin að skipulagsfulltrúi fái umboð til að breyta deiliskipulagi hafnarsvæðis (Framnes austan við Nesveg) í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010 og á móti, að láta breyta mörkum Deiliskipulags Grundarfjarðarhafnar sem er í vinnslu.

    Nefndin telur grenndarkynningu í samræmi við ákvæði 2. mgr. 43. gr. óþarfa þar sem ekki er um neinar framkvæmdir að ræða, heldur einungis breytingu á mörkum. Sömuleiðis sé breyting á notum umrædds svæðis ekki slík að kalli á grenndarkynningu. Hafa megi í huga, að Deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar sé enn í vinnslu og telji einhver sig hafa grenndarhagsmuni vegna breytingar þessa rýmis, gefst kostur á að koma með athugasemdir þegar deiliskipulagstillaga svæðisins verður auglýst.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Lögð fram fyrirspurn frá The First Iceland Mint ehf. um hvort stöðuleyfi fáist fyrir söluskúr/sölustarfsemi á svæði nærri Kirkjufelli í landi Sólbakka/Háls. Svæðið er ekki deiliskipulagt.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Umrætt svæði, sem óskað er eftir að söluskúr/aðstaða muni standa á, liggur fast uppvið aðliggjandi reiðveg. Svæðið er ekki deiliskipulagt. Deiliskipulag Háls/Sólbakka nær ekki yfir svæðið, en skv. aðalskipulagi er þetta innan skilgreinds landbúnaðarlands.

    Vegna framlagðrar fyrirspurnar telur skipulags- og umhverfisnefnd að ekki séu heimilar forsendur fyrir veitingu stöðuleyfis fyrir sölustarfsemi á umræddum stað/svæði.

    Svæðið sem um ræðir hefur nýlega verið merkt inn á kortavef Google Maps sem bílastæði.
    Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulagsfulltrúa að afla upplýsinga frá landeigendum um þá landnotkun.

  • Ugla Handverk sækir um stöðuleyfi á miðbæjarreit, fyrir gamlan en ökufæran strætisvagn sem áður hefur verið með starfsemi á hafnarsvæði valda daga á hverju sumri.
    Óskað er eftir að láta vagninn standa allt sumarið á miðbæjarreit.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Skipulags- og umhverfisnefnd telur að huga þurfi að umgjörð miðbæjarreits í heild sinni vegna fjölgunar söluvagna á svæðinu.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að veita Uglu handverk ehf. stöðuleyfi á miðbæjarreit, með fyrirvara um að sölusvæðið verði stækkað innan miðbæjarreitsins og nýting lóðanna Hamrahlíðar 6 og 8 verði aukin - og er það tillaga nefndarinnar til bæjarstjórnar.

    Að fenginni afgreiðslu bæjarstjórnar verði starfsmönnum skipulags- og umhverfissviðs falið að ræða við stöðuleyfishafa á miðbæjarreit vegna fjölgunar söluvagna á svæðinu. Ekki er talin þörf á grenndarkynningu vegna þessa, þar sem reiturinn er á skipulögðu miðbæjarsvæði, sem heimilar slíka starfsemi. Skipulagsfulltrúa er þó falið að upplýsa eigendur nærliggjandi lóða á Grundargötu og Hamrahlíð um stöðuna.

  • Skotgrund sækir um leyfi til að stækka athafnasvæði sitt tímabundið vegna mótahalds dagana 18.-19. júlí næstkomandi. Ennfremur er sótt um leyfi til að mega loka veginum um Kolgrafafjörð (frá skotsvæðinu og yfir að Seleyrum) meðan á mótinu stendur, en Grundarfjarðarbær er veghaldari gamla þjóðvegarins um Kolgrafafjörð.

    Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti fyrir sitt leyti sambærilega umsókn í febrúar 2025 vegna móts sem haldið var í ágúst sl.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Skipulags- og umhverfisnefnd gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við tímabundna lokun vegarins og stækkun athafnasvæðis út fyrir leiguland félagsins vegna mótahalds 18.-19. júlí nk. Nefndin telur mikilvægt að kynna vel lokun vegarins, komi til lokunar, og að greinilega verði gengið frá merkingum um hana við aðkomuleiðir inn í Kolgrafafjörð.

    Skipulagsfulltrúa falið að veita leyfið, með fyrirvara um afgreiðslu bæjarstjórnar.
    Bókun fundar Bæjarstjórn samþykkir samhljóða afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar.
  • Eigandi Hrannarstígs 34 fyrirhugar að setja svaladyr/útidyr með stórum glugga þar sem nú er stór stofugluggi á suðurhlið hússins. Sjá nánar á skissu.

    Taka þarf afstöðu til þess hvort um grenndarkynningarskylda framkvæmd sé að ræða vegna útlitsbreytingar. Ennfremur er Grundarfjarðarbær eigandi 5 íbúða af 7 í raðhúsalengjunni og þarf sem slíkur að taka afstöðu til framkvæmda sbr. lög 26/1994 um fjöleignarhús.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Skipulags- og umhverfisnefnd telur engin grenndaráhrif af útlitsbreytingunni og grenndarkynning þurfi ekki að fara fram vegna hennar. Þá gerir nefndin fyrir sitt leyti ekki athugasemd við að Grundarfjarðarbær sem eigandi annarra íbúða í raðhúsalengjunni samþykki fyrirhugaða breytingu á sameignarhluta sbr. lög 26/2994 um fjöleignarhús, en vísar því að öðru leyti til bæjarráðs/bæjarstjórnar.
  • Landeigandi í útsveit sendir fyrirspurn um afstöðu bæjarins til þess að komið verði upp fjárrétt í fjallskilasvæðinu.

    Erindi lagt fyrir nefndina sem fer skv. erindisbréfi sínu með fjallskilamálefni skv. ákvæðum laga nr. 6/1986. Einnig lagt fram minnisblað þjónustufulltrúa skipulags- og byggingarfulltrúa með upplýsingum um málefnið.

    Í dag er fé af fjalli rekið í fjárhús einnar bújarðarinnar og dregið sundur þar. Ekki er lögð fram tillaga að staðsetningu og ekki liggur fyrir afstaða annarra sauðfjáreigenda á fjallskilasvæðinu.

    Samkvæmt 49. gr. laga um fjallskil ber sveitarfélagi að tryggja að til sé fjárrétt, en af 51. gr. sömu laga má ráða að það sé samkomulagsatriði við fjallskilaskylda aðila hvort og þá hve mikill hluti kostnaðar er greiddur af sveitarfélaginu. Sjá nánar í minnisblaði.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Nefndin tekur fyrir sitt leyti jákvætt í að gerð verði rétt fyrir fjallskilasvæðið en telur jafnframt æskilegt að samkomulag sé á meðal fjallskilaskyldra aðila um staðsetningu hennar og að leitað verði eftir því. Í því sambandi óskar nefndin eftir því að viðkomandi aðilar líti til þess við gerð tillögu að staðarvali að kostnaði við réttarbyggingu sé haldið í lágmarki.

    Í umræðum nefndarinnar kom fram að við gerð nýlegrar réttar í Kolgrafafirði hafi bærinn lagt til timbur í réttargerðina auk vinnu starfsmanns úr áhaldahúsi, en að fjallskilaskyldir aðilar hafi að öðru leyti tekið að sér alla vinnu við smíði réttarinnar í góðu samkomulagi sín á milli.

    Samkvæmt 51. gr. laga nr. 6/1985 um afréttarmálefni, fjallskil og fleira skal kostnaður við byggingu nýrrar réttar greiddur af fjallskilasjóði, hafi ekki náðst samkomulag um annað, og sveitarstjórn er heimilað að leggja gjald á fjallskilaskylda aðila vegna réttarbyggingar. Komi fram beiðni um réttarbyggingu á fjallskilasvæðinu er það verkefni bæjarráðs eða bæjarstjórnar að kanna grundvöll þess að samkomulag náist milli Grundarfjarðarbæjar og fjallskilaskyldra aðila um þátttöku sveitarfélagsins í kostnaði við bygginguna.

    Bókun fundar Bæjarstjórn tekur undir afgreiðslu skipulags- og umhverfisnefndar um málið, sem borið verður undir fjallskilaskylda aðila í útsveit.
  • Vegna mála sem hafa verið í vinnslu hjá skipulagsfulltrúa var óskað eftir samantekt lögmanns um leiðbeiningar um ferli framkvæmdaleyfisumsókna.

    Minnisblað um málefnið lagt fram til kynningar.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279
  • Skipulagsstofnun hefur opnað nýja skipulagsvefsjá þar sem má nú nálgast á sama stað allt gildandi svæðis-, aðal- og deiliskipulag, uppdrætti og greinargerðir ásamt stafrænum aðal- og deiliskipulagsgögnum.

    skipulagsvefsja.is
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279
  • Greint frá umræðum á fundi bæjarins með sérfræðingi á tæknisviði Vegagerðarinnar 17. apríl sl. vegna endurhönnunar á Grundargötu m.t.t. umferðaröryggis.
    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Bærinn hefur óskað eftir aðkomu Vegagerðarinnar að því að endurskoða umgjörð og frágang í Grundargötu, sem er þjóðvegur í þéttbýli, til að bæta umferðaröryggi.

    Nanna sagði frá fundi sínum og bæjarstjóra með fulltrúa Vegagerðarinnar, þar sem farið var yfir fjölmörg þau atriði sem brennur á bænum að leysa varðandi Grundargötuna og er háð því hvernig Vegagerðin skilgreinir og gengur frá Grundargötunni.

  • .11 2601004 Framkvæmdir 2026
    Kynnt fyrir nefndinni að útboðsgögn vegna gatnagerðar auk fleiri innviða á iðnaðarsvæðinu vestan við Kverná voru unnin sl. vetur og eru tilbúin og eru framkvæmdir fyrirhugaðar síðar á árinu. Ennfremur eru tilbúin gögn vegna gatnagerðar við Hrannarstíg 42-46 (vestan við Fellaskjól), hvoru tveggja unnið af EFLU.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Lagt fram til kynningar
  • .12 2511002 LIFE-ICEWATER
    Lagðar fram til kynningar fréttir af ársfundi Icewater verkefnisins, sem haldinn var í Grundarfirði 14.-15. apríl 2026.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Nanna greindi einnig frá fundi með Akureyrarbæ í dag, þar sem hún kynnti Icewater-verkefni bæjarins og stefnumörkun bæjarstjórnar um blágrænar lausnir.

    Nanna fór einnig yfir helstu verkefni sem vinna á innan Icewater í ár. M.a. sagði hún frá því að hafinn væri undirbúningur að uppbyggingu í Paimpolgarði og "Hönnugili".

  • Skipulagsfulltrúi og bæjarstjóri lögðu fram yfirlit sem þau tóku saman um helstu verkefni á sviði nefndarinnar á yfirstandandi kjörtímabili, en verkefnin hafa verið bæði mörg og stór.

    Skipulags- og umhverfisnefnd - 279 Bæjarstjóri og skipulagsfulltrúi fóru yfir samantektina og verkefni tímabilsins.

    Þessi samantekt markar verklok nefndarinnar á tímabilinu, á þeim verkefnum sem bæjarstjórn setti á dagskrá og fól nefndinni að vinna að. Yfirlitið er tekið saman sem skýrsla um starfið á tímabilinu, fyrir nefnd og bæjarstjórn, auk þess sem hafnarstjórn kemur verulega að skipulagsstarfi á tímabili. Ekki síst er yfirlitið þó gert til að íbúar geti nálgast upplýsingar um verkefnin á einum stað og þær breytingar sem unnið hefur verið að í samstilltu átaki nefnda og bæjarstjórnar.

    Kynningin verður birt undir málinu.

    Haldnir hafa verið 43 bókaðir fundir á tímabilinu, að þessum meðtöldum. Auk þess hefur verið haldinn fjöldi opinna húsa og kynningarfunda um einstök skipulagsverkefni. Nefndin hefur gengist fyrir árlegu umhverfisrölti um bæinn (2 göngukvöld á hverju vori) og haldið sl. 2 ár kynningarfundi í tengslum við umhverfisröltið. Á tímabilinu var tekið upp það verklag að skipa 2 fulltrúa (af D- og L-lista) sem bakhjarla eða starfshóp fyrir stóru skipulagsverkefnin (iðnaðarsvæðið, íbúðarsvæði í Ölkeldudal og Framnesið) og gaf það fyrirkomulag betri tengingu skipulagsvinnunnar við skipulagsnefnd og bæjarstjórn. Tveir fulltrúar úr nefndinni taka nú þátt í hugmyndavinnu og undirbúningi bæjarstjórnar að útivistarsvæðum í upplandi bæjarins.

    Skipulagsfulltrúi og bæjarstjóri óskuðu eftir að koma á framfæri og bóka sérstakar þakkir og hrós til nefndarmanna fyrir gott og eljusamt starf á kjörtímabilinu, og góða samvinnu.