Í kjölfar kaupa Grundarfjarðarhafnar á Nesvegi 4 er óskað eftir breytingu á lóðarmörkum eignarinnar, þannig að hluti lóðar, sem notaður hefur verið undir bílastæði að sunnanverðu, verði hluti af svæði sem í deiliskipulagstillögu er nú nefnt „hafnartorg“. Lóðin minnkar þá skv. framlagðri tillögu. Samhliða verði deiliskipulagsmörkum breytt.
Tilgangur breytingarinnar er að nýta betur svæðið sem áður var bílastæði við Nesveg 4 og bæta flæði gangandi umferðar til og frá hafnarsvæði að miðbæ og auka umferðaröryggi, með því að tengja það betur við „hafnartorgið“.
Lóðin að Nesvegi 4 er hluti af Deiliskipulagi Framness austan við Nesveg, en hafnartorgið eða opna svæðið milli hafnarhúss að Nesvegi 2 og hússins að Nesvegi 4 er hluti af Deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar, sem nú er í vinnslu.
Lagt er til að deiliskipulagsmörkum verði breytt samhliða þessari breytingu á lóðarmörkum Nesvegar 4, þannig að „bílastæðahlutinn“ falli innan marka nýs Deiliskipulags Grundarfjarðarhafnar sem er í vinnslu, en ekki innan deiliskipulags hafnarsvæðisins (Framnes austan við Nesveg). Hafnartorgið verði þannig skýrari heild.
Skipulagsfulltrúi óskar eftir umboði til að breyta deiliskipulagi í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2010, og ennfremur óskar hann eftir afstöðu nefndarinnar til þess hvort grenndarkynning þurfi að fara fram vegna breytingar og hverjir séu þá grenndaraðilar.
Nefndin telur grenndarkynningu í samræmi við ákvæði 2. mgr. 43. gr. óþarfa þar sem ekki er um neinar framkvæmdir að ræða, heldur einungis breytingu á mörkum. Sömuleiðis sé breyting á notum umrædds svæðis ekki slík að kalli á grenndarkynningu. Hafa megi í huga, að Deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar sé enn í vinnslu og telji einhver sig hafa grenndarhagsmuni vegna breytingar þessa rýmis, gefst kostur á að koma með athugasemdir þegar deiliskipulagstillaga svæðisins verður auglýst.