Málsnúmer 2604018

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 654. fundur - 22.04.2026

Í tengslum við afgreiðslu ársreiknings 2025 hefur HLH ehf. tekið saman gögn og greiningar um fjárhagsstöðu bæjarins. Lagt fram til skoðunar og umræðu.



Arnar Haraldsson hjá HLH ehf. er gestur fundarins undir þessum lið, í fjarfundi.

Lögð var fram fjárhagsgreining HLH Ráðgjafar á rekstri, skuldum og sjóðsstreymi Grundarfjarðarbæjar fyrir tímabilið 2002?2029. Farið var yfir greininguna og hún rædd.

Úr texta Arnars:

Niðurstöður sýna jákvæða rekstrarniðurstöðu 2025, veltufé yfir 10% og skuldaviðmið innan lögboðinna marka. Árangur hefur náðst með lækkun skuldahlutfalls A-hluta en mikilvægt að halda þeirri vegferð áfram, A-hlutinn er í dag 120%.
Afkoma sveitarfélagsins er viðkvæm fyrir ytri skilyrðum og ekki er mælt með frekari skuldaaukningu A-hluta - mælt er með áframhaldandi niðurgreiðslu skulda og að eiginfjárframlag til nýrra stórfjárfestinga verði ekki lægra en 50% á næstu árum.

Arnari var þakkað fyrir komuna og góða yfirferð.

Gestir

  • Bjarni Sigurbjörnsson, bæjarfulltrúi, í fjarfundi - mæting: 09:30
  • Davíð Magnússon, bæjarfulltrúi í fjarfundi - mæting: 09:40
  • Arnar Haraldsson, ráðgjafi hjá HLH ehf. í fjarfundi - mæting: 09:30