Málsnúmer 2604024

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 279. fundur - 04.05.2026

Lögð fram fyrirspurn frá The First Iceland Mint ehf. um hvort stöðuleyfi fáist fyrir söluskúr/sölustarfsemi á svæði nærri Kirkjufelli í landi Sólbakka/Háls. Svæðið er ekki deiliskipulagt.



Umrætt svæði, sem óskað er eftir að söluskúr/aðstaða muni standa á, liggur fast uppvið aðliggjandi reiðveg. Svæðið er ekki deiliskipulagt. Deiliskipulag Háls/Sólbakka nær ekki yfir svæðið, en skv. aðalskipulagi er þetta innan skilgreinds landbúnaðarlands.

Vegna framlagðrar fyrirspurnar telur skipulags- og umhverfisnefnd að ekki séu heimilar forsendur fyrir veitingu stöðuleyfis fyrir sölustarfsemi á umræddum stað/svæði.

Svæðið sem um ræðir hefur nýlega verið merkt inn á kortavef Google Maps sem bílastæði.
Skipulags- og umhverfisnefnd felur skipulagsfulltrúa að afla upplýsinga frá landeigendum um þá landnotkun.

Fylgiskjöl: