Málsnúmer 2604030

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 279. fundur - 04.05.2026

Skotgrund sækir um leyfi til að stækka athafnasvæði sitt tímabundið vegna mótahalds dagana 18.-19. júlí næstkomandi. Ennfremur er sótt um leyfi til að mega loka veginum um Kolgrafafjörð (frá skotsvæðinu og yfir að Seleyrum) meðan á mótinu stendur, en Grundarfjarðarbær er veghaldari gamla þjóðvegarins um Kolgrafafjörð.



Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkti fyrir sitt leyti sambærilega umsókn í febrúar 2025 vegna móts sem haldið var í ágúst sl.



Skipulags- og umhverfisnefnd gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemdir við tímabundna lokun vegarins og stækkun athafnasvæðis út fyrir leiguland félagsins vegna mótahalds 18.-19. júlí nk. Nefndin telur mikilvægt að kynna vel lokun vegarins, komi til lokunar, og að greinilega verði gengið frá merkingum um hana við aðkomuleiðir inn í Kolgrafafjörð.

Skipulagsfulltrúa falið að veita leyfið, með fyrirvara um afgreiðslu bæjarstjórnar.