Ugla Handverk sækir um stöðuleyfi á miðbæjarreit, fyrir gamlan en ökufæran strætisvagn sem áður hefur verið með starfsemi á hafnarsvæði valda daga á hverju sumri.
Óskað er eftir að láta vagninn standa allt sumarið á miðbæjarreit.
Skipulags- og umhverfisnefnd telur að huga þurfi að umgjörð miðbæjarreits í heild sinni vegna fjölgunar söluvagna á svæðinu.
Skipulags- og umhverfisnefnd samþykkir að veita Uglu handverk ehf. stöðuleyfi á miðbæjarreit, með fyrirvara um að sölusvæðið verði stækkað innan miðbæjarreitsins og nýting lóðanna Hamrahlíðar 6 og 8 verði aukin - og er það tillaga nefndarinnar til bæjarstjórnar.
Að fenginni afgreiðslu bæjarstjórnar verði starfsmönnum skipulags- og umhverfissviðs falið að ræða við stöðuleyfishafa á miðbæjarreit vegna fjölgunar söluvagna á svæðinu. Ekki er talin þörf á grenndarkynningu vegna þessa, þar sem reiturinn er á skipulögðu miðbæjarsvæði, sem heimilar slíka starfsemi. Skipulagsfulltrúa er þó falið að upplýsa eigendur nærliggjandi lóða á Grundargötu og Hamrahlíð um stöðuna.