Eigandi Hrannarstígs 34 fyrirhugar að setja svaladyr/útidyr með stórum glugga þar sem nú er stór stofugluggi á suðurhlið hússins. Sjá nánar á skissu.
Taka þarf afstöðu til þess hvort um grenndarkynningarskylda framkvæmd sé að ræða vegna útlitsbreytingar. Ennfremur er Grundarfjarðarbær eigandi 5 íbúða af 7 í raðhúsalengjunni og þarf sem slíkur að taka afstöðu til framkvæmda sbr. lög 26/1994 um fjöleignarhús.