Málsnúmer 2605008

Vakta málsnúmer

Skipulags- og umhverfisnefnd - 279. fundur - 04.05.2026

Skipulagsfulltrúi og bæjarstjóri lögðu fram yfirlit sem þau tóku saman um helstu verkefni á sviði nefndarinnar á yfirstandandi kjörtímabili, en verkefnin hafa verið bæði mörg og stór.



Bæjarstjóri og skipulagsfulltrúi fóru yfir samantektina og verkefni tímabilsins.

Þessi samantekt markar verklok nefndarinnar á tímabilinu, á þeim verkefnum sem bæjarstjórn setti á dagskrá og fól nefndinni að vinna að. Yfirlitið er tekið saman sem skýrsla um starfið á tímabilinu, fyrir nefnd og bæjarstjórn, auk þess sem hafnarstjórn kemur verulega að skipulagsstarfi á tímabili. Ekki síst er yfirlitið þó gert til að íbúar geti nálgast upplýsingar um verkefnin á einum stað og þær breytingar sem unnið hefur verið að í samstilltu átaki nefnda og bæjarstjórnar.

Kynningin verður birt undir málinu.

Haldnir hafa verið 43 bókaðir fundir á tímabilinu, að þessum meðtöldum. Auk þess hefur verið haldinn fjöldi opinna húsa og kynningarfunda um einstök skipulagsverkefni. Nefndin hefur gengist fyrir árlegu umhverfisrölti um bæinn (2 göngukvöld á hverju vori) og haldið sl. 2 ár kynningarfundi í tengslum við umhverfisröltið. Á tímabilinu var tekið upp það verklag að skipa 2 fulltrúa (af D- og L-lista) sem bakhjarla eða starfshóp fyrir stóru skipulagsverkefnin (iðnaðarsvæðið, íbúðarsvæði í Ölkeldudal og Framnesið) og gaf það fyrirkomulag betri tengingu skipulagsvinnunnar við skipulagsnefnd og bæjarstjórn. Tveir fulltrúar úr nefndinni taka nú þátt í hugmyndavinnu og undirbúningi bæjarstjórnar að útivistarsvæðum í upplandi bæjarins.

Skipulagsfulltrúi og bæjarstjóri óskuðu eftir að koma á framfæri og bóka sérstakar þakkir og hrós til nefndarmanna fyrir gott og eljusamt starf á kjörtímabilinu, og góða samvinnu.

Bæjarráð - 656. fundur - 22.05.2026

Lagt fram yfirlit um verkefni á sviði skipulagsmála og umhverfismála, þar sem fram kemur staða einstakra verkefna og næstu skref, sbr. t.d. þau skipulagsverkefni sem nú eru í kynningu, en tvö verkefni eru t.d. með auglýsingatíma til 2. júní nk.



Í ljósi endurnýjunar fulltrúa í bæjarstjórn og skipulags- og umhverfisnefnd, í kjölfar nýafstaðinna sveitarstjórnarkosninga, og í ljósi þess að bæði bæjarstjóri og skipulagsfulltrúi ljúka störfum á næstu dögum, þá telur bæjarráð mikilvægt að skilja meðfylgjandi upplýsingar eftir fyrir nýja bæjarstjórn og skipulagsnefnd, nýjan skipulagsfulltrúa og nýjan bæjarstjóra.

Samþykkt að senda yfirlitið nýrri bæjarstjórn.