Lögð fram beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi um umsögn við umsókn Fjordside Byways um rekstrarleyfi til reksturs gististaðar í flokki II, minna gistiheimili, sem rekið verði sem Gilshús 2, að Grundargötu 52, Grundarfirði.
Um málið gilda sömu atriði og leiðbeiningar/ráðgjöf lögmanns bæjarins og tekið var saman um málið sem er undir dagskrárlið 27 hér að framan (Grundargata 12B).
Í þessu felist þó ekki afstaða bæjarstjórnarinnar sjálfrar til þess hvort skipulagslega eigi að heimila slíka breytingu, en það er ákvörðun sem kemur til afgreiðslu bæjarstjórnar síðar í ferlinu.
Samþykkt samhljóða.