Lögð fram beiðni Sýslumannsins á Vesturlandi um umsögn við umsókn Bolla ehf. um rekstrarleyfi til reksturs gististaðar í flokki II, minna gistiheimili, sem rekið verður sem Bjargarsteinn gisting, að Sólvöllum 15, Grundarfirði.
Í húsnæðinu var áður rekinn veitingastaður og það er staðsett á Framnesi sem er skilgreint sem "Verslun og þjónusta" í aðalskipulagi. Í því ljósi er ekkert því til fyrirstöðu að veita jákvæða umsögn um málið.
Bæjarstjórn gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi sé veitt, en með fyrirvara um jákvæðar umsagnir byggingarfulltrúa og slökkviliðsstjóra.
Samþykkt samhljóða.
FÞÞ tók aftur sæti sitt á fundinum og við stjórn hans. RDB vék af fundi.