Málsnúmer 2605025

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 657. fundur - 23.06.2026

Lagður fram til kynningar verksamningur milli Grundarfjarðarbæjar og Golfklúbbsins Vestarr um rekstur og viðhald á íþróttavelli Grundarfjarðar. Markmið samningsins er að tryggja viðhald og umhirðu íþróttavallar í Grundarfirði þannig að hann sé leik- og keppnisfær og uppfylli kröfur um notkun á samningstímanum. Samningurinn er frá 1. maí til 30. september 2026.