657. fundur 23. júní 2026 kl. 08:30 - 12:07 í Ráðhúsi Grundarfjarðar
Nefndarmenn
  • Aðalsteinn Jósepsson (AJ) formaður
  • Jósef Ó. Kjartansson (JÓK)
  • Fannar Þór Þorfinnsson (FÞÞ)
  • Signý Gunnarsdóttir (SG)
Starfsmenn
  • Birkir Jón Jónsson (BJJ) bæjarstjóri
  • Sigurlaug R. Sævarsdóttir (SRS) skrifstofustjóri
Fundargerð ritaði: Sigurlaug R. Sævarsdóttir skrifstofustjóri
Dagskrá
Formaður setti fund og gengið var til dagskrár.

1.Deiliskipulag Grundarfjarðarhafnar

Málsnúmer 2508010Vakta málsnúmer

Kynning Halldóru Hreggviðsdóttur frá Alta fyrir nýjum bæjarfulltrúum, nefndarmönnum í skipulags- og umhverfisnefnd og hafnarstjórn, á fyrirliggjandi tillögu að deiliskipulagi Grundarfjarðarhafnar.

Halldóra fór yfir málið með nefndarmönnum. Umræður um málið.

Gestir véku af fundi.

Gestir

  • Hafsteinn Garðarsson, hafnarstjóri - mæting: 08:30
  • Ágústa Einarsdóttir, bæjarfulltrúi - mæting: 08:30
  • Sólveig Ásta Bergvinsdóttir, aðalmaður í umhverfis- og skipulagsnefnd - mæting: 08:30
  • Signý Gunnarsdóttir, bæjarfulltrúi - mæting: 08:30
  • Örvar Þór Örlygsson, verkefnastjóri tæknimála - mæting: 08:30
  • Þuríður Gía Jóhannesdóttir, bæjarfulltrúi - mæting: 08:30
  • Guðmundur Rúnar Svansson, þjónustufulltrúi byggingafulltrúa - mæting: 09:00
  • Bjarni Sigurbjörnsson, bæjarfulltrúi - mæting: 08:30
  • Hrafnhildur Bárðardóttir, aðalmaður í umhverfis- og skipulagsnefnd - mæting: 08:30
  • Halldóra Hreggviðsdóttir, ráðgjafi Alta - mæting: 08:30

2.Framkvæmdir 2026

Málsnúmer 2601004Vakta málsnúmer

Farið yfir helstu framkvæmdir.

Örvar fór yfir helstu framkvæmdaverkefni.

Framkvæmdir í eldhúsi grunnskóla, framkvæmdir við grunnskólaþak, seyrulosun og framkvæmdir við Hjallatún.

Bæjarráð veitir bæjarstjóra og verkefnastjóra tæknimála heimild til að fara í útboð í Hjallatúni.

Samþykkt samhljóða.

Rætt um lagningu göngustígs frá skólalóð að íþróttavelli og meðfram Hlíðarvegi.

Lagt til að önnur lausn en malarstígur verði fundin.

Samþykkt samhljóða.

Gestir

  • Örvar Þór Örlygsson, verkefnastjóri tæknimála - mæting: 10:20

3.Beiðni um viljayfirlýsingu vegna kostgæfnisathugunar á lóð í eigu Grundarfjarðarbæjar

Málsnúmer 2509008Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að viljayfirlýsingu.

FÞÞ vék af fundi undir þessum lið og SG tók sæti hans á fundinum.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi viljayfirlýsingu og felur bæjarstjóra að undirrita hana.

Samþykkt samhljóða.

FÞÞ tók aftur sæti sitt á fundinum.

Gestir

  • Bjarni Sigurbjörnsson, bæjarfulltrúi - mæting: 10:45

4.Lausafjárstaða 2026

Málsnúmer 2601006Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir lausafjárstöðu.

5.Greitt útsvar 2026

Málsnúmer 2602002Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir greitt útsvar janúar-apríl og janúar-maí 2026.

Samkvæmt yfirlitunum hefur greitt útsvar hækkað um 12,6% fyrstu fjóra mánuði ársins og 16% fyrstu fimm mánuði ársins miðað við sama tímabil í fyrra.

6.Rekstraryfirlit 2026

Málsnúmer 2605013Vakta málsnúmer

Lagt fram rekstraryfirlit fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins, janúar- mars 2026.

Reksturinn er um 15 millj. kr. undir áætlun fyrstu þrjá mánuði ársins vegna hærri fjármagnsgjalda sökum aukinnar verðbólgu.

7.Launaáætlun 2026

Málsnúmer 2605014Vakta málsnúmer

Lagt fram yfirlit yfir raunlaun og áætlun fyrir tímabilið janúar-maí 2026.

Raunlaun eru undir áætlun tímabilsins.

8.Tíu ára yfirlit 2016-2025

Málsnúmer 2606037Vakta málsnúmer

Lagt fram tíu ára fjárhagsyfirlit Grundarfjarðarbæjar, A- og B-hluta, með upplýsingum úr ársreikningum og lykiltölum áranna 2016-2025.

9.Starf bæjarstjóra

Málsnúmer 2606017Vakta málsnúmer

Lagður fram ráðningarsamningur bæjarstjóra.

BJJ vék af fundi undir þessum lið.

Bæjarráð samþykkir framlagðan ráðningarsamning.

Samþykkt samhljóða.

BJJ tók aftur sæti sitt á fundinum.

10.Starf skipulagsfulltrúa

Málsnúmer 2606018Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn fól bæjarráði að leita tímabundið til samninga við verkfræðistofu um ráðningu skipulagsfulltrúa, þar til fundin yrði varanleg lausn.

FÞÞ vék af fundi undir þessum lið og þeim næsta og SG tók sæti hans.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að semja tímabundið við verkfræðistofu um ráðningu skipulagsfulltrúa um fyrirliggjandi verkefni, þar til starfið yrði auglýst.

Samþykkt samhljóða.

11.Starf byggingarfulltrúa

Málsnúmer 2606033Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn fól bæjarráði að leita tímabundið til samninga við verkfræðistofu um ráðningu byggingarfulltrúa, þar til fundin yrði varanleg lausn.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að semja tímabundið við verkfræðistofu um ráðningu byggingarfulltrúa um fyrirliggjandi verkefni, þar til starfið yrði auglýst.

Samþykkt samhljóða.

FÞÞ tók aftur sæti sitt á fundinum.

12.Alexandra Björg Andradóttir - Styrkbeiðni v. landsliðs í blaki

Málsnúmer 2606030Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni Alexöndru Bjargar Andradóttur um styrk vegna landsliðsverkefnis í blaki.

Bæjarráð samþykkir að veita 100.000 kr. styrk til Alexöndru. Gert er ráð fyrir styrkframlagi til landsliðsverkefna í fjárhagsáætlun ársins.

Samþykkt samhljóða.

13.Merkjalýsing Nesvegur 8-10

Málsnúmer 2606035Vakta málsnúmer

Lögð fram merkjalýsing fyrir Nesveg 8-10 til samþykktar.

Bæjarráð samþykkir merkjalýsingu fyrir Nesveg 8-10.

Samþykkt samhljóða.

14.Merkjalýsing Nesvegur 12

Málsnúmer 2606036Vakta málsnúmer

Lögð fram merkjalýsing fyrir Nesveg 12 til samþykktar.

Bæjarráð samþykkir merkjalýsingu fyrir Nesveg 12.

Samþykkt samhljóða.

15.Umhverfisviðurkenningar Grundarfjarðarbæjar 2026

Málsnúmer 2606038Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað bæjarstjóra um umhverfisviðurkenningar Grundarfjarðarbæjar 2026.

Bæjarráð samþykkir að veittar verði umhverfisviðurkenningar sumarið 2026 og felur bæjarstjóra umsjón verkefnisins.

Samþykkt samhljóða.

16.Mennta- og barnamálaráðuneytið - Vegna breytinga í skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga 2023-2027

Málsnúmer 2606029Vakta málsnúmer

Lagt til að bæjarstjóra verði veitt umboð til að skipa fulltrúa í skólanefnd FSN í samráði við fulltrúa annarra sveitarfélaga á Snæfellsnesi.

Bæjarstjóra veitt umboð til að tilnefna fulltrúa í skólanefnd FSN í samráði við aðra fulltrúa.

Samþykkt samhljóða.

17.Golfklúbburinn Vestarr - Ársuppgjör 2024-2025

Málsnúmer 2604028Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar ársuppgjör Golfklúbbsins Vestarr fyrir starfsárið 2024-2025.

18.Hinsegin dagar - Sameinuð undir regnboganum - Hinsegin dagar 2026

Málsnúmer 2605020Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Hinsegin daga um tímarit og fræðsluverkefni Hinsegin daga.

19.Innviðaráðuneytið - Boð um þátttöku í samráði - Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum (Gjaldaákvæði hafnalaga)

Málsnúmer 2605021Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar tölvupóstur Innviðaráðuneytisins um áformað frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum.

Bæjarráð vísar kynningunni til umsagnar í hafnarstjórn.

Samþykkt samhljóða.

20.Verksamningur GVG og Grundarfjarðarbæjar vegna viðhalds íþróttavallar

Málsnúmer 2605025Vakta málsnúmer

Lagður fram til kynningar verksamningur milli Grundarfjarðarbæjar og Golfklúbbsins Vestarr um rekstur og viðhald á íþróttavelli Grundarfjarðar. Markmið samningsins er að tryggja viðhald og umhirðu íþróttavallar í Grundarfirði þannig að hann sé leik- og keppnisfær og uppfylli kröfur um notkun á samningstímanum. Samningurinn er frá 1. maí til 30. september 2026.

Fundargerð lesin upp og samþykkt.

Fundi slitið - kl. 12:07.