Lagt fram til kynningar bréf fráfarandi bæjarstjóra til mennta- og barnamálaráðherra með beiðni um lausn frá setu í skólanefnd FSN, en skipunarbréf skólanefndarinnar rennur ekki út fyrr en 24. okt. 2027.
Sveitarfélögin þrjú á norðanverðu Snæfellsnesi hafa fengið erindi frá ráðherra, með ósk um að tilnefna annan fulltrúa í stað Bjargar. Málið var tekið fyrir undir 19. lið á dagskrá þessa fundar.